Fákar og fjör á Akureyri í vetur
Framkvæmdanefnd stórsýningarinnar „Fákar og Fjör“ í reiðhöllinni á Akureyri kom saman til fyrsta fundar nú í hádeginu í dag mánudag og þar var ákveðið að sýningin á árinu 2010 verði Laugardaginn 10. apríl.
Mikið verður lagt undir og nú þegar hefur beinagrind sýningarinnar verið gerð og mikill metnaður er meðal nefndarmanna að stíga skref framávið og gera betur en á vígslusýningunni sl vor sem að allra mati þótti hinn glæsilegasta.
Strax eftir áramót verður byrjað að velja atriði í sýninguna sem og hross.
Stefnt er að því að allur dagurinn þann 10. apríl verði undirlagður í atriði sem tengjast með einum og eða öðrum hætti sýningunni um kvöldið.
Í Sýningarnefnd Fákar og Fjör 2010:
Hólmgeir Valdimarsson.
Sigfús Helgason.
Friðrik Kjartansson.
Halldór Jónsson og
Kristmundur Stefánsson.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH