Fáksfréttir – Fánahlaup, vetrarleikar og sýnikennsla með Mette
Fánahlaup ungmennafélags Fáks verður nk. föstudagskvöld og hefst í Reiðhöllinni kl. 20:30 – frítt inn. Fánahlaupið fer þannig fram að það keppa 3 saman í liði og eru tvö lið í brautinni í einu. Þetta er einhverskonar boðhlaup og það lið sem er fljótast sigrar.
Allir geta skráð sig – um að gera að taka þátt í skemmtilegri keppni. Skrá þar í tölvupósti á [email protected] eða á [email protected]
——
Vetrarmót á laugardaginn
Fyrra vetrarmót Fáks verður á laugardaginn og hefst það kl. 13:30. Skráning í félagsheimili Fáks frá kl. 12:30 – 13:00 (1.000 kr. fyrir ungmenni og eldri flokka – frítt fyrir unglinga og yngri).
Dagskrá:
Pollaflokkur, bæði þeir sem ríða sjálfir og þeir sem teymt er undir (allir verðlaunaðir) á Brekkuvelli
Börn
Unglingar
Ungmenni
Konur II
Konur I
Karlar II
Karlar I
—————
Sýnikennsla með Mette Mannseth
Fræðslunefnd Fáks minnir á sýnikennslu með Mette Manseth, laugardaginn 20.febrúar 2010, í Reiðhöllinni í Víðidal kl. 17:00
Áhersla sýnikennslunnar mun vera á þjálfun reið- og keppnishesta, þar sem sýnd verða mikilvægi vinnubragða við hendi og á baki. Komið, sjáið og fræðist um gagnleg atriði í þjálfun hesta frá einum fremsta reiðkennara landsins.
Miðaverð aðeins 1.000 kr fyrir fullorðna, 15.-18.ára greiða 500 kr og frítt fyrir börn 14. ára og yngri. Allir velkomnir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH