Fákshólar og Þúfur ræktunarbú ársins

  • 3. desember 2023
  • Fréttir
Í fyrsta sinn tvö hrossaræktarbú verðlaunuð sem Ræktunarbú ársins

Fagráðsstefna hrossaræktarinnar fór fram í dag í Félagsheimili Fáks í Víðidal. Þar voru tilnefnd ræktunarbú ársins verðlaunuð auk þess sem ræktunarbú ársins var útnefnd.

Í fyrsta sinn vor tvö hrossaræktarbú verðlaunuð sem Ræktunarbú ársins en það eru hrossaræktunarbúið Þúfur og Fákshólar.

Ræktendur í Fákshólum eru Jakob Svavar Sigurðsson og Helga Una Björnsdóttir. Sex hross voru sýnd frá búinu og var meðalaldur þeirra 5.67. Efsta hrossið sýnt frá búinu var Hrönn frá Fákshólum sem stóð efst á Heimsleikum í flokki sex vetra hryssna með 8.66 í aðaleinkunn.

Ræktendur á Þúfum eru þau Mette Mannseth og Gísli Gíslason. Tíu hross voru sýnd frá búinu og var meðalaldur þeirra 4,9 ár. Efsta hrossið sýnt frá búinu var heimsmethafinn Strengur frá Þúfum en hann setti heimsmet þegar hann hlaut 8.65 í aðaleinkunn fjögurra vetra.

Önnur tilnefnd bú:

Árbær, Vigdís Þórarinsdóttir, Maríanna Gunnarsdóttir, Guðmundur Bæringsson og fjölskyldur

Efri-Fitjar, Gréta Brimrún Karlsdóttir, Gunnar Þorgeirsson, Tryggvi Björnsson og fjölskylda

Fet, Hrossaræktarbúið Fet

Haukagil á Hvítársíðu, Ágúst Þór Jónsson og Þóra Áslaug Magnúsdóttir

Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble

Lækjamót, Sonja Líndal Þórisdóttir, Friðrik Már Sigurðsson, Ísólfur Líndal Þórisson, Vigdís Gunnarsdóttir, Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal, Þórir Ísólfsson og Elín Rannveig Líndal

Prestsbær, Inga og Ingar Jensen

Skipaskagi, Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir

Steinnes, Magnús Jósefsson, Líney Árnadóttir, Jón árni Magnússon og Berglind Bjarnadóttir

Sumarliðabær, Birgir Már Ragnarsson og Silja Hrund Júlíusdóttir

Viðtöl og frekari upplýsingar og útreikningar um ræktendur ársins og önnur tilnefnd bú birtist í Árbók Eiðfaxa sem kemur út um miðjan mánuðinn

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar