Fáksmenn éta ræktunina
Fáksmenn í Reykjavík munu hefja nýja árið með hrossakjötsáti. Það er svokallað Limsfélag, sem er félag um stóðhest eftir því sem næst verður komist, sem stendur fyrir hrossakjötsveislu í samstarfi við hrossaræktardeild félagsins. Ekki er tekið fram í tilkynningu á vef Fáks hvort kjötið er af gripum félagsmanna, sem þó er ekki ólíklegt, eins og nú árar. Átið mun eiga sér stað í Fáksheimilinu laugardagskvöldið 8. janúar. Boðið verður upp á saltað og reykt hrossakjöt, hrossasperðla, kartöflur, uppstúf, rauðkál og grænar baunir. Kristinn Hugason, fyrrverandi hrossaræktarráðunautur, mun stýra átinu og fylgja því eftir með orðgnótt, eins og honum einum er lagið. Á eftir verður svo harmonikkuspil, myndasýningar, söngur og gleði. Þessi stórveisla kostar aðeins 2500 krónur. Hægt er að panta miða á netfanginu: [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári