Fákur – Knapamerki eitt og tvö

  • 6. september 2010
  • Fréttir
Fákur - Knapamerki eitt og tvö

Boðið verður upp á knapamerki eitt og tvö núna í september í Reiðhöllinni í Víðidal ef næg þátttaka næst.
Námskeiðin verða þrisvar í viku og því mun hraðari kennsla en venjulega ….. 

Tilvalið tækifæri til að taka hestinn inn og skella sér á námskeið í nokkrar vikur. Sennilega verður ekki boðið aftur upp á knapamerki eitt fyrr en næsta vor (apríl/maí) svo það er um að gera að nýta tækifærið og klára þessi námskeið með stæl.
Þeir sem hafa áhuga á að skrá sig sendi tölvupóst á [email protected] fyrir 8. sept. ( námskeiðin hefjast 13.-15. september).
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link