Fegurðarsamkeppni staðreynd
Í jólablaði Eiðfaxa má nálgast athyglisverða grein Grétu V. Guðmundsdóttur um ímynd íslenska hestsins. Góður rómur var gerður að erindi Grétu á aðalfundi Félags hrossabænda þar sem hún spurði; hvað gerir íslenska hestinn íslenskan?
„Það er forvitnilegt að leita uppi fyrirmyndir að fegurðarmati fyrir íslenska hestsinn og hvað mótar fegurðarsmekk hestamanna. Dökkir hestar eru orðnir meira áberandi í keppni en áður var. Þar getur verið um ákveðna tísku að ræða eða þá trú manna að dökkur hestur taki sig betur út á velli. Hesturinn verði meira áberandi á ljósum keppnisvelli og fái því mögulega hærri einkunn. Ímynd þess sem sem er fagurt á mannskepnunni virðist hafa færst yfir á ræktun hrossa. Grannur vöxtur, langir fætur, sítt hár og frítt andlit fær háan dóm í fegurðarsamkeppni manna. Á sama hátt fær hross með dragsítt tagl og fax, grannan vöxt, háa fætur og frítt höfuð háa einkunn í sýningardómum. Fegurðarsamkeppni hesta er staðreynd,“ segir m.a. í greininni.
Jólablað Eiðfaxa er stútfullt af áhugaverðu efni fyrir hestamanninn. Blaðið er á leið til áskrifenda en hægt er að panta áskrift í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH