Félagsferð Stíganda
Sumarferð hestamannafélagsins Stíganda er áætluð dagana 22. ágúst til 24. ágúst. Riðið verður úr Skagafirði í Galtará á Eyvindarstaðaheiði föstudaginn 22. ágúst. Brottför frá Mælifellsrétt kl. 14:00. Á laugardeginum verður riðið um Eyvindarstaðarheið. Á sunnudegi verður haldið heim og endar ferðin á upphafsreit, í Mælifellsrétt. Gistingin í Galtará kostar 3.500 kr pr. nótt og 80 kr. fyrir hestinn. Við bætist hlutdeild í heykostnaði og sameiginlegum mat.
Skráning í ferðina er hjá Magnúsi Andréssyni (895-6673), Ingimari Ingimarssyni (891-9560) og Eyþóri Einarssyni (862-6627). Skráningu líkur sunnudaginn 17. ágúst.
Nefndin
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH