Félagsfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands í næstu viku
Almennur félagsfundur verður haldinn í Rangárhöllinni við Hellu mánudaginn 25. okt. 2021, kl. 20.
Fundarefnið er aðild hrossabænda og annarra hrosseigenda að Bændasamtökum Íslands.
Málshefjendur eru Sveinn Steinarsson formaður Félags hrossabænda og Unnsteinn Snorrason starfsmaður Bændasamtaka Íslands. Þeir fara yfir stöðuna og svara fyrirspurnum.
Stjórn H.S. hvetur félagsmenn sína og aðra áhugamenn um hrossahald til að mæta og kynna sér málin. Nýskipan mála innan félagskerfis bændasamtakanna í landinu fela í sér grundvallarbreytingar og skipta því hrossahaldendur miklu máli.
Streymt verður frá fundinum og verður slóðin inná streymið auglýst síðar.
Stjórnin
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt