Félagsmót Freyfaxa

  • 3. júlí 2017
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Haldið helgina 8.-9. júlí nk. í Stekkhólma.

Félagsmót Freyfaxa verður haldið helgina 8.-9. júlí nk. í Stekkhólma. Mótið er opið og keppt verður í eftirfarandi greinum:

A-flokkur
B-flokkur
B-flokkur áhugamenn (riðin sérstök forkeppni)
Ungmennaflokkur
Unglingaflokkur
Barnaflokkur
Tölt T1 opinn flokkur
Tölt T3 áhugamenn
Tölt T3 17 ára og yngri
Hindrunarstökk með útsláttarfyrirkomulagi (ekkert skráningargjald, skráningar á staðnum. Hægt að prufa brautina fyrir keppni)

Skráningar fara fram á skraning.sportfengur.com og er skráningargjald 3.000 kr. á hverja skráningu. Skráningafrestur rennur út á miðnætti miðvikudaginn 5. júlí. Vanti einhverjum hjálp við að skrá á mótið er hægt að hafa samband við Valdísi í síma 848-0632. Við biðjum þá sem höfðu skráð áður að gera það aftur til að staðfesta þátttöku sína á mótinu.

Forkeppni hefst kl. 11.00 á laugardegi en knapafundur hefst klukktúma fyrr eða klukkan 10.00. Úrslit hefjast kl. 10.00 á sunnudeginum.

Hægt er að hólfa niður beitarhólf fyrir hross á svæðinu, en hesteigendur þurfa að koma með strengi, staura, rafstöð og dalla til að brynna í sjálfir.

Þegar keppni lýkur á laugardeginum verður farið í reiðtúr um svæðið og að reiðtúr loknum bjóða Hofteigur og Freyfaxi upp á grillkjöt og meðlæti. Við biðjum alla þá sem ætla að mæta á grillið að skrá sig á netfangið [email protected] fyrir hádegi miðvikudaginn 5. júlí.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link