Félagsmót Léttfeta

  • 14. júní 2012
  • Fréttir
Félagsmót Léttfeta

Félagsmót Léttfeta verður haldið næstkomandi laugardag og hefst mótið klukkan 10.00. Keppt verður í A-flokki, B-flokki, barnaflokki, unglingaflokki og ungmennaflokki.

Skráningargjöld greiðist á staðnum (ath. kort ekki tekin).
Mótið hefst eins og áður segir kl. 10.00 en röð flokka verður eftirfarandi:
    B-flokkur
    Barnaflokkur
    Unglingaflokkur
    Ungmennaflokkur
    A-flokkur
Þegar forkeppni er lokið í öllum flokkum verða úrslit riðin í sömu röð.
Ráslista má nálgast á heimasíðu Léttfeta, www.lettfeti.net.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link