Feykir frá Háholti heimsmeistari í elsta flokki stóðhesta

  • 10. ágúst 2013
  • Fréttir
Kynbótasýningum lokið en kynning efstu hryssna hefst klukkan 16.30.

Feykir frá Háholti og Sigurður Óli hafa gert það gott hér í Berlín og landað einum heimsmeisaratitli í elska flokki stóðhesta fyrir Íslands hönd.

Feykir hækkaði fyrir skeið á yfirliti og er kominn í 8,70 í aðaleinkunn – og þar með einnig orðinn hæst dæmdi stóðhestur mótsins, einni kommu hærri en Spóliant í 6v flokknum.

Feykir er undan gæðingaföðurnum Andvara frá Ey og Eflingu frá Háholti.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link