Filippa og Lögg í A-úrslit í tölti
Næst síðasti keppnisdagur Norðurlandsmóts er nú í fullum gangi og nú seinni partinn fara fram hin ýmsu B-úrslit. Hægt er að horfa á Norðurlandamótið í beinni á EiðfaxaTV en allar upplýsingar, ráslista og dagskrá er hægt að sjá í HorseDay.
Í B-úrslitum í tölti átti Ísland einn fulltrúa en það var Þórarinn Eymundsson á Nátthrafni frá Varmalæk. Hlutskipti hans í úrslitunum voru annað sætið með 7,33 í einkunn og því hlutskipti hans sjöunda sætið í tölti á Norðurlandamóti. Sigurvegari B-úrslitanna er Filippa Montan á Lögg frá Slippen sem keppir fyrir Danmörku var einkunn þeirra 7,50
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 6 | Filippa Montan / Lögg fra Slippen | 7,50 |
| 7 | Þórarinn Eymundsson / Náttfari frá Varmalæk | 7,33 |
| 8 | James Faulkner / Hálfmáni frá Steinsholti | 7,28 |
| 9 | Madelen Johansson / Sjarmi från Kristineberg | 7,17 |
| 10 | Agnes Helga Helgadóttir / Sigur fra Jakobsgården | 6,94 |
Filippa og Lögg í A-úrslit í tölti
Endurtók leikinn tíu árum seinna