Fimm daga Reykjavíkurmót að hefjast
Fáksfélagar á LM2011 á Vindheimamelum.
Eitt stærsta hestamót ársins, Reykjavíkurmótið í hestaíþróttum hefst miðvikudaginn 2. maí með keppni í fjórgangi í öllum flokkum. Á fimmta hundrað keppendur eru skráðir til leiks og skráningar eru um 620. Keppt er í öllum hefðbundnum greinum hestaíþrótta, nema 150 og 250 m skeiði, sem hefur valdið nokkrum vonbrigðum hjá skeiðmönnum. Mótið er svokallað WorldRanking mót, sem þýðir að árangur er metinn inn á heimslista FEIF, þar á meðal árangur í kappreiðaskeiði.
Það sló ekki á þátttökuna á þessu vinsæla móti að skráningargjöld voru hækkuð og eru nú 5000 krónur á grein fyrir fullorðna og ungmenni (nema 3500 krónur fyrir 100 m skeið), en 3500 krónur fyrir börn og unglinga. Fáksfélagar fá 1000 kóna afslátt, en mótið er opið og allir sem eru í hestamannafélagi innan LH mega taka þátt. Kerckhaert og Útfararstofa kirkjugarðanna ehf. styrkja mótið
Hér fyrir neðan má sjá drög að dagskrá mótsins, sem er birt með þeim fyrirvara að smávægilegar breytingar geta orðið og verður það þá tilkynnt sérstaklega á heimasíðu Fáks, www.fakur.is.
Dagskrá:
Miðvikudagur 2. maí
12:00 Knapafundur í Reiðhöllinni
13:00 Fjórgangur 1 flokkur
15:15 Hlé
15:30 Fjórgangur 2 flokkur
17:10 Fjórgangur unglinga
19:00 Matarhlé
19:30 Fjórgangur börn
20:45 Fjórgangur meistara
Fimmtudagur 3. maí
14:00 Fimmgangur 1. flokkur
16:20 Fimmgangur 2. flokkur
16:45 Hlé
17:00 Fimmgangur ungmenna
17:40 Fimmgangur unglinga
18:40 Fimmgangur meistara
20:00 Matarhlé
20:30 Fjórgangur ungmenna
Föstudagur 4. maí
14:00 Tölt 1 flokkur
15:45 Tölt 2 flokkur
17:20 Hlé
17:30 Tölt unglinga
18:30 Tölt börn
19:10 Matarhlé
19:40 Tölt ungmenni
20:40 Tölt meistara
Laugardagur 5. maí
9:00 Gæðingaskeið 1. flokkur, unglingar, ungmenni og meistarar
12:00 Matarhlé
12:30 Slaktaumatölt T4 1. flokkur
12:45 Slaktaumatölt T4 ungmenni
13:15 Slaktaumatölt T4 meistara
13:30 B úrslit Fjórgangur 1. flokkur
B úrslit Fjórgangur 2. flokkur
B úrslit Fjórgangur börn
B úrslit Fjórgangur unglingar
B úrslit Fjórgangur ungmenni
15:30 Hlé
15:45 B úrslit Fimmgangur 1. flokkur
B úrslit Fimmgangur ungmenni
16:45 B úrslit Tölt 1. flokkur
B úrslit Tölt 2. flokkur
B úrslit Tölt börn
B úrslit Tölt unglingar
B úrslit Tölt ungmenni
B úrslit Tölt meistara
18:45 Matarhlé
19:30 A úrslit Slaktaumatölt T4 1. flokkur
A úrslit Slaktaumatölt T4 ungmenna
A úrslit Slaktaumatölt T4 meistara
20:30 100 m skeið
Sunnudagur 6. maí
10:00 A úrslit Fjórgangur 2. flokkur
A úrslit Fjórgangur 1. flokkur
A úrslit Fjórgangur börn
A úrslit Fjórgangur unglingar
A úrslit Fjórgangur ungmenni
A úrslit Fjórgangur meistara
12:30 Matarhlé
13:00 A úrslit fimmgangur 2. flokkur
A úrslit fimmgangur 1. flokkur
A úrslit fimmgangur unglingar
A úrslit fimmgangur ungmenni
A úrslit Fimmgangur meistara
15:30 Hlé
15:45 A úrslit Tölt 2 flokkur
A úrslit Tölt 1 flokkur
A úrslit Tölt börn
A úrslit Tölt unglingar
A úrslit Tölt ungmenni
A úrslit Tölt meistara
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH