Fimm dagar eftir
„Nú eru síðustu dagar söfnunarinnar okkar á Karolinafund og við erum enn bara komin í 35% af því sem við settum okkur sem markmið. Það er mikilvægt að við náum 100% því annars skilar átakið engu. Við þurfum því að taka virkilega á því núna síðustu dagana.
Í vor fengum við veglegan styrk frá Framleiðnisjóði sem hjálpaði mikið og við gátum sett verkefnið í gang fyrir alvöru en það er gríðarlega umfangsmikið svo við ákváðum að setja af stað þessa söfnun á Karolinafund. Verkefninu fylgir heilmikil myndvinnsla og svo ekki síst þýðingar á fleiri tungumál svo vefurinn nýtist hestamönnum erlendis líka. Ef okkur gengur vel að fjármagna þá getum við unnið þessa þætti hraðar og byrjað á nýjum og spennandi verkefnum. Við erum með fulla kistu af hugmyndum að nýju efni sem okkur langar að vinna og setja á vefinn.
Við leitum því til ykkar enn og aftur að hjálpa okkur að ná markinu með því að styrkja, deila póstum eða fjalla um söfnunina og hvetja aðra til að styrkja verkið. Hvert framlag hjálpar og eftir því sem okkur gengur betur að fjármagna þeim mun meira getum við gert og þeim mun öflugri verður vefurinn fyrir notendur.
Söfnunin fer fram á
https://www.karolinafund.com/project/view/909
Fyrir þá sem vilja ekki styrkja gegn um síðuna þá er hægt að hafa samband við okkur og styrkja beint inná reikning. Til þess að gera það þarf að skrá nafn og email til að ég geti skráð þá sem notendur á síðuna sem umbun fyrir styrkinn. Það er gert hér:
http://reidmenn.com/contact-2/
Hér er svo aftur facebook síðan okkar:
https://www.facebook.com/reidmenn“
Kærar þakkir fyrir stuðninginn
Aðstandendur Reiðmanna
Styttu haustið með EiðfaxaTV