Fimm ungmenni til Berlínar

  • 1. nóvember 2012
  • Fréttir
Fimm ungmenni til Berlínar

Næsta heimsmeistaramót fer fram í stórborginni Berlín, Þýskalandi dagana 4.-11. ágúst. Búist er við um 20.000 gestum frá 19 þjóðlöndum.  Undirbúningur fyrir mótið er nú einnig hafinn af fullum krafti hér heima.

 Landsliðsnefnd LH boðaði til fundar í húsakynnum Líflands í Brúarvogi í gær.  Meðal annars fór Bjarnleifur Bjarneifsson formaður landsliðsnefndar yfir helstu verk nefndarinnar fram að heimsmeistaramóti, lykill landsliðsins var kynntur af Sigurði Sæmundssyni, Hafliði Halldórsson liðstjóri íslenska landsliðsins hélt metnaðarfulla ræðu og Gunnar Sturluson stjórnaformaður FEIF kynnti helstu dagskrá félagsins. 

Sigurður útskýrði hvernig valið í landsliðið fer fram og þær breytingar sem orðið hafa á lyklinum frá síðasta heimsmeistaramóti. Breytingin varð sú að fimm ungmenni komast inn á mótið frá hverju landi í stað þriggja.  Þá verða haldin sér úrslit fyrir þau.  “Þetta er frábært tækifæri og óhemju mikil draumastaða fyrir unga fólkið að koma svona inn og fá að ríða sín úrslit.” sagði Sigurður.

Hafliði Halldórsson fór mikinn, sagði að HM væri mjög mikilvægt fyrir markaðsetningu íslenska hestsins. “Ef landsliðinu gengur vel hefur það áhrif á alla heildina, við þurfum að vera leiðandi og sýna árangur og getu, sem er ekki sjálfgefinn”  Hafliði og landsliðnefnd  lögðu mikla áherslu á góðan undirbúning liðsins, að knapar fræði sig á íþróttadómum og styðji hvorn annan. Mikilvægt er einnig að ríða úrslit í úrtöku til þess að hafa þá vitneskju um að hesturinn sé fullfær um þau átök líka. 

Þá kynnti Gunnar Sturluson helstu dagskrá FEIF, þar sem félagar eru meðal annars að vinna hörðum höndum að þýðingum á reglugerð um ræktun íslenska hestsins á ensku og greiningu gangtegunda.

Úrtakan verður haldin í samstarfi við Gullmótið og hún fer fram 12.-15. júní, 2013 á félagssvæði Fáks í Víðidal.

LYKILL AÐ VALI ÍSLENSKA LANDSLIÐSINS Á HM 2013 

Fullorðnir og ungmenni: 

1. Knapi/hestur: Stigahæsti 5-gangari í úrtöku, að meðaltali úr báðum umferðum. 

2. Knapi/hestur: Stigahæsti 4-gangari í úrtöku, að meðaltali úr báðum umferðum. 

3. Knapi/hestur: Stigahæsti töltari T1 í úrtöku, að meðaltali úr báðum umferðum. 

4. Knapi/hestur: 

a) Knapi/hestur (parið) ef hann nær 8.46 eða hærri einkunn í T2 í úrtöku, að meðaltali úr báðum umferðum. 

b) Knapi/hestur (parið) sem nær 8.40 eða hærri einkunn í gæðingaskeiði PP1 í úrtöku, að meðaltali úr báðum umferðum. 

c) Knapi/hestur (parið) sem nær 7.44 sek eða betri tíma úr tveimur umferðum í P2 100m skeiði. 4 sprettir, tveir bestu sprettir gilda úr báðum umferðum. Parið verður að skila einum spretti að auki 7.80 eða betri tíma af þessum fjórum sprettum. Ef fleiri en einn hestur nær lágmarkinu þá skal sá veljast sem betri árangri nær miðað við þau lágmörk sem sett eru. Lagt er að jöfnu: Einkunn: 8.46 í slaktaumatölti T2, Einkunn: 8.40 í gæðingaskeiði PP1, Tími: 7.44 í 100m skeiði P2. 

5. Knapi/hestur: sem nær 22.10 sek eða betri tíma einu sinni á móti og 22.70 eða betri tíma í öðrum spretti sem þarf ekki að vera á sama móti. Árangurinn þarf að nást við löglegar aðstæður úr rásbásum með rafrænni tímatöku, eða á því móti sem ákveðið er að verði lokamót vegna vals á liðinu 2013 

Ef hestur 4 og 5 nást ekki eftir uppgefnum lágmörkum verða þeir báðir valdir af liðsstjóra. 

6. Knapi/hestur: Liðsstjóri velur. 

7. Knapi/hestur: Liðsstjóri velur. 

8. Knapi/hestur: Það ungmenni/par sem nær hæstu einkunn í fimmgangi í úrtöku (F1) 

9. Knapi/hestur: Það ungmenni/par sem nær hæstu einkunn í fjórgangi í úrtöku (V1) 

10 Knapi/hestur: það ungmenni/par sem nær hæstu einkun í tölti (T1) 

11. Knapi/hestur: Ungmenni, liðsstjóri velur par sem hefur tekið þátt í móti á Íslandi, í hvaða grein sem er, þar til lokaval fer fram. 

12. Knapi/hestur: Ungmenni, liðsstjóri velur par sem hefur tekið þátt í móti, í hvaða grein sem er, þar til lokaval fer fram. 

Keppendur 1-7 eru fullorðnir. 

Keppendur 8-12 eru ungmenni. 

Reiknað er meðaltal greina úr báðum hlutum úrtökunnar hjá knapa 1-2-3-4-8-9 og 10 og ræður það um sæti knapa/hests (pars). 

Um knapa/hest (par) 4-5 gilda ofantalin lágmörk en aðrir eru liðstjóravaldir.  

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link