„Finnst ég alltaf kunna jafn lítið“

  • 1. nóvember 2021
  • Fréttir

Daníel á Þóroddi frá Þóroddsstöðum á Landsmóti 2006

Daníel Jónsson er viðmælandi Hjörvars í nýjasta þættinum af Á Kaffistofunni

Í þættinum ræða þeir ýmis málefni er tengjast Daníel og hestamennskunni almennt.

Við skulum grípa niður í samtalið þar sem Hjörvar spyr hverjir það eru sem höfðu áhrif á hann sem  ungan mann,

„Ég var á Ketilsstöðum á Völlum og lærði þar mikið af Bergi, vini mínum, og fékk þar til dæmis sterka ræktunarsýn, því þar snérist allt um hrossarækt og ég smitaðist af þeirri bakteríu, sem var þó ansi mikil fyrir. Ég var töluvert mikið í kringum Ragga Hinriks í Fáki og mér hlotnaðist nú sá heiður árið 2000 að leigja hesthús veturlangt á Ingólfshvoli þar sem Reynir Aðalsteinsson var líka og það er nú lengsta námskeið sem ég hef verið á í lífinu að sitja og horfa á hann vinna þennan vetur. Það eru margir aðrir sem koma upp í hugann sem hafa mótað mig en ég var og er mjög þyrstur í að læra meira og sæki námskeið alveg óhikað og finnst ég alltaf kunna jafn lítið. Ég held að það sé mikilvægt fyrir þá sem vilja bæta sig og ná árangri að tileinka sér það að kunna eins lítið og þeir geta og sækja sér nýja hluti, það er enginn sem kann allt.“

Þátturinn er aðgengilegur hér á vef Eiðfaxa og á Spotify.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link