Fjögur hross hlutu 9,5 fyrir greitt stökk

  • 3. september 2021
  • Fréttir

Alls hlutu fjögur hross 9,5 fyrir greitt stökk á árinu hér á landi. Meðalaldur hrossana er 6 ár en tvö hlutu einkunnina á vorsýningum en hin tvö á síðsumarssýningum.

Einn stóðhestur er í hópnum en það er Eljar frá Gljúfurárholti en hann var sýndur af Jakobi Svavari Sigurðssyni. Eljar er undan Konserti frá Hofi og Stáladótturinni, Nótt frá Ingólfshvoli. Ræktandi Eljars er Örn Karlsson og Maríanna Rúnarsdóttir en eigandi er Guðmundur S Hjálmarsson.

Hryssurnar sem fengu 9,5 fyrir greitt stökk eru þær Þrá frá Prestsbæ, Toppa frá Gröf og Dís frá Ytra-Vallholti. Dís er undan Kyndil frá Ytra-Vallholti og Gyðju frá Ytra-Vallholti. Ræktandi og eigandi er Vallholt ehf. Dís var sýnd af Bjarna Jónassyni

Toppa frá Gröf er undan Lord frá Vatnsleysu og Gloppu frá Varmalæk 1. Það var Flosi Ólafsson sem sýndi Toppu en hún er ræktuð af og í eigu Ásmunds Ingvarssonar.

Þrá frá Prestsbæ er undan Arion frá Eystra-Fróðholti og Þóru frá Prestsbæ. Ræktendur og eigendur eru Inga og Ingar Jensen en sýnandi Þráar var Þórarinn Eymundsson.

 

Listi með þeim hrossum sem hlutu 9,5 fyrir greitt stökk.

Nafn Uppruni í þgf. Sýnandi
Dís Ytra-Vallholti Bjarni Jónasson
Eljar Gljúfurárholti Jakob Svavar Sigurðsson
Toppa Gröf Flosi Ólafsson
Þrá Prestsbæ Þórarinn Eymundsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link