Fjölbreyttar hestgerðir
Þorvaldur Kristjánsson ritar inngangsorð Stóðhestablaðs Eiðfaxa í ár. Þar talar hann um hið flókna verkefni sem ræktun íslenska hestsins er:
Ein aðalforsenda fegurðar í ganglagi er mýkt og gegnumflæði í hreyfingum og mýktin einkennir gæðareiðhross óháð því hlutverki sem þeim er ætlað. Hinar verðmætu hestgerðir innan stofnsins eru fjölmargar og við erum í raun að rækta hross sem eiga að nýtast breiðum hópi fólks, sem vill t.d. njóta útreiða, fara í ferðir, nema reiðlist og keppa. Það gerir íslenska hrossarækt að víðfeðmu og um leið flóknu verkefni.
Grein þessa má nálgast í 4. tbl. Eiðfaxa, Stóðhestablaðinu. Hægt er að gerast áskrifandi að Eiðfaxa í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH