Fjöldi hrossa í dóm á Gaddstaðaflötum

  • 25. ágúst 2011
  • Fréttir
Fjöldi hrossa í dóm á Gaddstaðaflötum

Síðsumarssýningunni á Gaddstaðaflötum lauk á yfirlitssýningu og verðlaunaafhendingum í dag en 221 hross var skráð til dóms og komu 174 hross til fullnaðardóms.

Hæstu aðaleinkunn hlaut 6 vetra stóðhestur, Blær frá Sólvöllum, undan Gára frá Auðsholtshjáleigu og Dömu frá Stakkhamri 2. Hlaut hann 8,43 fyrir sköpulag og 8,10 fyrir hæfileika. Þar af hlaut Blær einkunnina 9 fyrir samræmi, fótagerð og hófa og 9,5 fyrir prúðleika. Einkunnina 8 hlaut hann fyrir tölt, skeið, stökk og fegurð í reið og 8,5 fyrir brokk og vilja og geðslag. Knapi Blæs var Sólon Morthens.

Þá hlaut Freyja frá Efri-Rauðalæk 8,21 sem var næst hæsta einkunn sem gefin var á sýningunni.  Hún hlaut 8,07 fyrir byggingu og 8,30 fyrir hæfileika. Þar af hlaut hún einkunnina 8,5 fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag, fegurð í reið, fet, hægt tölt og hægt stökk. Knapi Freyju var Sigurður Sigurðarson.

Hæstu hæfileikaeinkunn hlaut Eirvör frá Hamrahóli 8,50. Eirvör er undan Akk frá Brautarholti og Sabrínu frá Hamrahóli og hlaut Eirvör m.a. einkunnina 9 fyrir tölt og vilja og geðslag og 8,5 fyrir brokka, stökk, fegurð í reið og hægt tölt. Eirvör hlaut fyrir sköpulag 7,59 og í aðaleinkunn 8,14. Knapi Eirvarar var Hrefna María Ómarsdóttir.

Hryssur 7 vetra og eldri

1.       IS2004281817 Hríma frá Þjóðólfshaga 1
Sköpulag: 8,19
Kostir: 8,20
Aðaleinkunn: 8,19

2.       IS2003265892 Karitas frá Kommu
Sköpulag: 8,24
Kostir: 8,09
Aðaleinkunn: 8,15

3.       IS2004281800 Þöll frá Haga
Sköpulag: 7,93
Kostir: 8,19
Aðaleinkunn: 8,08

4.       IS2004288247 Hugmynd frá Hvítárholti
Sköpulag: 7,96
Kostir: 8,16
Aðaleinkunn: 8,08

Hryssur 6 vetra

1.       IS2005265398 Freyja frá Efri-Rauðalæk
Sköpulag: 8,07
Kostir: 8,30
Aðaleinkunn: 8,21

2.       IS2005281743 Lyfting frá Sælukoti
Sköpulag: 7,74
Kostir: 8,44
Aðaleinkunn: 8,16

3.       IS2005286613 Eirvör frá Hamrahóli
Sköpulag: 7,59
Kostir: 8,50
Aðaleinkunn: 8,14

Hryssur 5 vetra

1.       IS2006282825 Náð frá Galtastöðum
Sköpulag: 7,97
Kostir: 8,22
Aðaleinkunn: 8,12

2.       IS2006276180 Bylgja frá Ketilsstöðum
Sköpulag: 8,08
Kostir: 8,13
Aðaleinkunn: 8,11

3.       IS2006237272 Athöfn frá Stykkishólmi
Sköpulag: 8,14
Kostir: 8,00
Aðaleinkunn: 8,06

Stóðhestar 7 vetra og eldri

1.       IS2004165493 Frosti frá Efri-Rauðalæk
Sköpulag: 8,14
Kostir: 8,10
Aðaleinkunn: 8,12

2.       IS2003135518 Alvar frá Nýjabæ
Sköpulag: 8,16
Kostir: 7,90
Aðaleinkunn: 8,00

3.       IS2002188262 Prins frá Langholtskoti
Sköpulag: 7,74
Kostir: 8,14
Aðaleinkunn: 7,98

Stóðhestar 6 vetra

1.       IS2005135338 Blær frá Sólvöllum
Sköpulag: 8,43
Kostir: 8,14
Aðaleinkunn: 8,26

2.       IS2005187291 Brattur frá Tóftum
Sköpulag: 7,65
Kostir: 8,39
Aðaleinkunn: 8,09

3.       IS2005181578 Roði frá Stóra-Klofa
Sköpulag: 8,02
Kostir: 7,72
Aðaleinkunn: 7,84

Stóðhestar 5 vetra

1.       IS2006187833 Sólmundur frá Hlemmiskeiði 3
Sköpulag: 8,16
Kostir: 8,13
Aðaleinkunn: 8,14

2.       IS2006137335 Gróði frá Naustum
Sköpulag: 7,71
Kostir: 8,19
Aðaleinkunn: 8,00

3.       IS2006182651 Hylur frá Austurkoti
Sköpulag: 7,94
Kostir: 7,97
Aðaleinkunn: 7,96

Stóðhestar 4 vetra

1.       IS2007181415 Sproti frá Sauðholti 2
Sköpulag: 8,46
Kostir: 8,01
Aðaleinkunn: 8,19

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link