Fjórða mót Vesturlandsdeildarinnar
Fjórða mót Vesturlandsdeildarinnar 2018 fer fram fimmtudagskvöldið 5. apríl n.k. og verður keppt í fimmgangi. Eins og áður fer mótið fram í Faxaborg, Borgarnesi.
Deildin hefur farið vel af stað í vetur og aldrei verið sterkari. Von er á fjölda sterkra hesta og knapa og má því búast við góðri skemmtun í Faxaborg næstkomandi fimmtudag. Randi Holaker sigraði fimmganginn í fyrra og eftir sigur þeirra í gæðingafiminni um daginn má búast við þeim sjóðandi heitum á gólfið í fimmganginum.
Húsið opnar klukkan 19.00 og fyrsti hestur mætir stundvíslega kl. 20.00 á gólfið.
Miðaverð er 1000 krónur en frítt inn fyrir 10 ára og yngri.
Vesturlandsdeildin er einstaklings- og liðakeppni en 34 knapar mynda sjö, fjögurra og fimm manna lið sem etja kappi í 6 greinum hestaíþrótta.
Ráslisti verður birtur þriðjudagskvöldið 3. mars
Staðan í liðakeppninni þegar mótið er hálfnað er.
1. Leiknir/Skáney – 152 stig
2. Stelpurnar frá Slippfélaginu & SuperJeep – 128.5 stig
3. Berg/Hrísdalur/Austurkot – 115 stig
4. Hestaland – 95 stig
5. Childéric/Lundar/Nettó – 80.5 stig
6. Hrímnir – 62.5 stig
7. Fasteignamiðstöðin – 59.5 stig
og staðan í einstaklingskeppninni er þessi:
1. Siguroddur Pétursson – 32 stig
2. Ylfa Guðrún Svafarsdóttir – 24 stig
3. Randi Holaker – 22 stig
4. Berglind Ragnarsdóttir – 19 stig
5.- 6. Haukur Bjarnason – 15 stig
5.- 6. Páll Bragi Hólmarsson – 15 stig
7. Hrefna María Ómarsdóttir – 9.5 stig
8. Anna Renisch – 9 stig
9. Guðmar Þór Pétursson – 7 stig
10.- 12. Elvar Logi Friðriksson – 4 stig
10.- 12. Konráð Valur Sveinsson – 4 stig
10.- 12. Valdís Björk Guðmundsdóttir – 4 stig
13. Halldór Sigurkarlsson – 2.5 stig
14.- 15. Líney María Hjálmarsdóttir – 2 stig
14.- 15. Maiju Varis – 2 stig
16.- 18. Guðjón Örn Sigurðsson – 1 stig
16.- 18. Þorgeir Ólafsson – 1 stig
16.- 18. Máni Hilmarsson – 1 stig
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH