Fjórgangskeppni Granamótaraðar á fimmtudag

  • 21. febrúar 2011
  • Fréttir
Fjórgangskeppni Granamótaraðar á fimmtudag

Hestamannafélagið Grani LBHÍ stendur fyrir annarri keppni í Granamótaröðinni fimmtudaginn 24. febrúar kl. 18:30 á Mið-Fossum í Borgarfirði en þá verður keppt í fjórgangi.

Skipt verður keppendum í þrjá flokka; 1. flokk fyrir meira keppnisvana knapa, 2. flokk fyrir minna keppnisvana knapa og flokk keppenda 17 ára og yngri

Skráning skal berast á [email protected] að keppa fram þarf að koma nafn knapa, nafn hests, aldur litur, ætterni, hönd og flokkur. Skráningargjald er 1000 krónur.

Frítt er inn fyrir áhorfendur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link