Fjörtökin stinn
„Bleikur var allókyrr, meðan Jón var að komast í hnakkinn, frýsaði hátt og bruddi mélin, en þó fór allt skaplega með þeim. Ríður hann nú austur á veginn og norður að hliðinu, og þrátt fyrir „fjörtök stinn“, til að byrja með, náði Jón þó valdi yfir klárnum og hef ég aldrei séð hest vaða betur áfram á töltinu, þar sem hann hringaði sig upp í fangið á gamla manninum, enda brast hvorki á með ásetuna né taumhaldið. Er að hliðinu kemur, snýr Jón við. En nú kom heldur betur fjörkippur í Bleik. Hann tók geysilegt loftkast og svo hvert af öðru, og þau svo snögg að Jón missti hann á flugsprett suður veginn í ótal loftköstum. En er vegalengdin til okkar er hálfnuð, þá nær Jón valdi á hestinum. En þá skipti nú snarlega um gangtegund, því Jón greip hann niður á dunandi skeiðroku heim að réttinni.“
Frásögn af Jóni Ólafssyni frá Mýrarlóni má nálgast í 5. tbl. Eiðfaxa sem berst áskrifendum eftir helgi. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH