Flagbjarnarholt er ræktunarbú Spretts 2020
Bragi Guðmundsson og Sveinbjörn Bragason með hryssuna Fold frá Flagbjarnarholti á milli sín. Mynd: Aðsend
Í kvöld, fimmtudaginn 21. jan, veitti Ræktunarfélag Spretts viðurkenningar til sinna félagsmanna fyrir ræktunarárangur síðasta árs.
Ræktunarbú Spretts árið 2020 er Flagbjarnarholt. Að ræktuninni standa hjónin Sveinbjörn Bragason og Þórunn Hannesdóttir, auk foreldra Sveinbjarnar þeirra Braga Guðmundssonar og Valgerðar Þorvaldsdóttur. Árið 2020 voru sýndar fjórar hryssur ræktaðar af fjölskyldunni auk þess sem hryssan Surtsey frá Feti sem er í þeirra ræktun hlaut heiðursverðlaun á árinu. Systurnar Fold og Fjöður komu fram á Landssýningunni á Hellu árið 2020 og röðuðu þær sér þar með bestu hrossum landsins.
Fjölmörg hross í eigu félagsmanna í ræktunarfélagi Spretts voru sýnd á árinu.
4 vetra hryssur
Í flokki fjögurra vetra hryssna voru 2 hryssur sýndar.
Í öðru sæti er Flugsvinn frá Ytra-Dalsgerði en hún hlaut í aðaleinkunn 8,01. Ræktandi Kristinn Hugason. Flugsvinn er undan Arði frá Brautarholti og Brák frá Ytra-Dalsgerði. Fyrir byggingu hlaut hún 8,54 og fyrir hæfileika 7,73. Hæst hlaut hún 9 fyrir bak/lend og hófa.

List frá Efsta-Seli, knapi er Daníel Jónsson
Efsta hryssa í flokki fjögurra vetra hryssan er hryssan List frá Efsta-Seli. Ræktendur eru Hilmar Sæmundsson og Daníel Jónsson. List er undan Skaganum frá Skipaskaga og Lady frá Neðra-Seli. List hlaut fyrir byggingu 8,30 og fyrir hæfileika 8,27. Aðaleinkunn 8,28. Hæst ber að nefna 9 fyrir háls/herðar og bóga og 8,5 fyrir tölt, brokk, vilja og fegurð í reið, bak/lend og samræmi. List er önnur hæst dæmda 4ra vetra hryssa á landinu árið 2020.
5 vetra hryssur
Í þriðja sæti í flokki 5 vetra hryssna er Sara frá Vindási ræktuð af Auði Stefánsdóttur og Stefáni Pálssyni. Sara er undan Spuna frá Vesturkoti og Gjöf frá Vindási. Sara hlaut í aðaleinkunn 8,17 sem skiptist í 8,17 fyrir byggingu og 8,16 fyrir hæfileika. Hæst ber að nefna 9 fyrir fet. Sara hlaut einnig 8,5 fyrir tölt, hægt tölt, samstarfsvilja, fegurð í reið, háls/herðar og bóga og samræmi.
Í öðru sæti í flokki 5 vetra hryssna er Hrund frá Efsta-Seli ræktuð af Daníel Jónssyni. Hrund er undan Hrafni frá Efri Rauðalæk og Spá frá Eystra Fróðholti. Hún hlaut í aðaleinkunn 8,31. Þar af 8,53 fyrir byggingu og 8,18 fyrir hæfileika. Hrund hlaut sex sinnum einkunnina 9 en það var fyrir höfuð, samræmi, tölt, hægt tölt, samstarfsvilja og fegurð í reið.

Dimma frá Efsta-Seli, knapi er Daníel Jónsson.
Í efsta sæti 5 vetra hryssna er Dimma frá Efsta-Seli ræktuð af Daniel Jónssyni og Hilmari Sæmundssyni. Dimma er undan Ölni frá Akranesi og Óperu frá Gýjarhóli. Dimma hlaut í aðaleinkun 8,37 sem skiptist í 8,35 fyrir sköpulag og 8,38 fyrir kosti. Hæst ber að nefna 9, fyrir bak og lend og samstarfsvilja. Dimma er alhliða hryssa með 8,5 fyrir tölt, skeið, greitt stökk og fegurð í reið.
Fimm vetra hestar
Í þriðja sæti í flokki fimm vetra hesta er hesturinn Náttfari frá Neðra-Seli ræktaðir af Garðari Hólm Birgissyni og Birgir Hólm Garðarssyni. Náttfari er undan Arion frá Eystra-Fróðholti og Hrönn frá Neðra-Seli. Hann hlaut í aðaleinkunn 8,0 þar af 8,51 fyrir byggingu og 7,73 fyrir hæfileika. Þar af 9 fyrir háls, herðar og bóga, bak, lend og samræmi.
Í öðru sæti er Kraftur frá Eystra-Fróðholti er ræktaður af Ársæli Jónssyni. Kraftur er undan Óskasteini frá Íbishóli og Sæl frá Eystra-Fróðholti. Kraftur hlaut 8,35 í aðaleinkunn þar af 8,44 fyrir byggingu og 8,30 fyrir hæfileika. Hæst hlaut hann 9 fyrir hófa og samstarfsvilja. Kraftur hlaut einnig 8,5 fyrir tölt, skeið, greitt stökk, fegurð í reið, höfuð, háls/herðar/bóga og samræmi.
Í fyrsta sæti er Hilmir frá Hamarsey sem ræktaður er af Hannesi Sigurjónssyni og Ingu Cristina Campos. Hilmir er undan Hreyfli frá Vorsabæ og Hátíð frá Úlfsstöðum. Hilmir hlaut 8,35 í aðaleinkunn sem skiptist í 8,47 fyrir byggingu og 8,28 fyrir hæfileika. Hilmir er aðsópsmikill klárhestur sem hlaut hlaut sex sinnum einkunnina 9 en það var fyrir fyrir bak og lend, tölt, hægt tölt, brokk, samstarfsvilja og fegurð í reið.
6 vetra hryssur
Í flokki 6 vetra hryssna voru margar hryssur sýndar í eigu félagsmanna í Hrossaræktarfélagi Spretts. Sú hryssa sem er í þriðja sæti er Bryðja frá Barkarstöðum ræktuð af Sveinbirni Sveinbjörnssyni. Bryðja hlaut í aðaleinkunn 8,36 sem skiptist í 8,44 fyrir byggingu og 8,31 fyrir hæfileika. Bryðja er undan Framherja frá Flagbjarnarholti og Valhöll frá Blesastöðum. Hæst hlaut Bryðja frá Barkarstöðum 9,5 fyrir brokk og greitt stökk en að auki hlaut hún einkunnina 9,0 fyrir samræmi, tölt, samstarfsvilja og fegurð í reið.
Í öðru sæti er Vala frá Eystra-Fróðholti ræktuð af Ársæli Jónssyni og Ragnheiði Hrund Ársælsdóttur. Vala hlaut í aðaleinkun 8,39 sem skiptist í 8,34 fyrir byggingu og 8,42 fyrir hæfileika. Vala er undan Vála frá Efra-Langholti og Spá frá Eystra-Fróðholti. Vala hlaut 9 fyrir hófa, tölt, greitt stökk og samstarfsvilja. Að auki hlaut Vala frá Eystra-Fróðholti 8,5 fyrir háls/herðar/bóga, bak og lend, brokk, hægt tölt og fegurð í reið.

Fjöður frá Flagbjarnarholti, knapi er Sveinbjörn Bragason.
Efsta hryssa í flokki 6 vetra hryssna er Fjöður frá Flagbjarnarholti ræktuð af Sveinbirni Bragasyni og Valgerði Þorvaldsdóttur. Fjöður hlaut 8, 46 í aðaleinkunn sem skiptist í 8,49 fyrir byggingu og 8,45 fyrir hæfileika. Fjöður er undan Framherja frá Flagbjarnarholti og Gyðju frá Lækjarbotnum. Fjöður frá Flagbjarnarholti hlaut til að mynda 9 fyrir bak og lend, greitt stökk og samstarfsvilja. Fjöður er vel byggð alhliða hryssa með jafnar og góðar gangtegundir.
6 vetra hestar
Í flokki 6 vetra hesta eru tveir hestar verðlaunaðir.
Í öðru sæti eru hesturinn Bliki frá Vesturkoti ræktaður af Finni Ingólfssyni. Bliki er undan Hring frá Gunnarsstöðum og Sprund frá Hnjúkahlíð. Bliki hlaut aðaleinkunnina 8,08 sem skiptist í 8,0 fyrir byggingu og 8,12 fyrir kosti. Bliki hlaut 9 fyrir tölt, að auki fékk hann 8,5 fyrir greitt stökk, samstarfsvilja, fegurð í reið og hægt tölt. Bliki frá Vesturkoti fékk einnig 8,5 fyrir háls/herðar/bóga og einnig fyrir hófa.

Már frá Votumýri, knapi er Daníel Jónsson.
Í efsta sæti 6 vetra stóhesta í eigu félagsmanna í ræktunarfélagi Spretts er Már frá Votumýri ræktaður af Gunnari Má Þórðarsyni og Kolbrúnu Björnsdóttur. Már er undan Kiljan frá Steinnesi og Önn frá Ketilsstöðum. Kiljan hlaut í aðaleinkunn 8,48 sem skiptist í 8,71 fyrir byggingu og 8,36 fyrir hæfileika. Hæstu einkunnir Más eru 9,5 fyrir bak og lend, 9 fyrir tölt, hægt tölt, fegurð í reið og samræmi. Már er enn eitt afkvæmi Annar frá Ketilsstöðum sem hlotið hefur viðurkenningu fyrir frammúrskarandi árangur hjá Hrossaræktarfélagi Spretts.
7 vetra hryssur og eldri
Í flokki hryssna 7 vetra og eldri voru fjölmargar hryssur sýndar af félagsmönnum í ræktunarfélagi Spretts. Þriðja hæsta dæmda hryssan er Þoka frá Hamarsey. Ræktendur Hannes Sigurjónsson, Helgi Jón Harðarson og Erlingur Erlingsson. Þoka frá Hamarsey er undan Herjólfi frá Ragnheiðarstöðum og Þrumu frá Hólshúsum. Þoka hlaut í aðaleinkunn 8,37 þar af 8,35 fyrir byggingu og 8,28 fyrir hæfileika. Þoka hefur hlotið 9,5 fyrir tölt og samstarfsvilja og 9 fyrir hægt tölt, hægt stökk, fegurð í reið, háls/herðar/bóga, bak og lend og einnig fyrir hófa.
Önnur hæst dæmda hryssan í flokki 7 vetra og eldri er alhliða hryssan Sif frá Eystra Fróðholti ræktuð af Ársæli Jónssyni. Sif er undan Óðni frá Eystra Fróðholti og Sæl frá Eystra Fróðholti. Sif hlaut í aðaleinkunn 8,38 sem skipist í 8,66 fyrir sköpulag og 8,22 fyrir kosti. Hæst hlaut Sif frá Eystra Fróðholti einkunnina 9,5 fyrir bak og lend. Að auki hlaut Sif einkunnina 9 fyrir samræmi.

Fold frá Flagbjarnarholti, knapi er Ævar Örn Guðjónsson.
Efsta hryssa í flokki 7 vetra og eldri er Fold frá Flagbjarnarholti ræktuð af Sveinbirni Bragasyni og Braga Guðmundssyni. Fold hlaut í aðaleinkunn 8,73 þar af 8,36 fyrir byggingu og 8,93 fyrir kosti. Fold frá Flagbjarnarholti er undan Óm frá Kvistum og Gyðju frá Lækjarbotnum. Fold hlaut einkunnina 9,5 fyrir skeið og samstarfsvilja. Auk þess hlaut Fold frá Flagbjarnarholti 9 fyrir tölt, fegurð í reið auk þess að hljóta 9 fyrir bak og lend. Fold er grimmvakur alhliðagæðingur með jafnar gangtegundir.
7 vetra hestar og eldri
Í flokki 7 vetra hesta og eldri var einungis einn stóðhestur sýndur, ræktaður af félagsmanni í ræktunarfélagi Spretts, en það er Rauðskeggur frá Kjarnholtum. Rauðskeggur er undan Kiljan frá Steinnesi og Heru frá Kjarnholtum I. Ræktandi Rauðskeggs er Magnús Einarsson. Rauðskeggur hlaut í aðaleinkunn 8,87 en það skiptist í 8,76 fyrir byggingu og 8,92 fyrir kosti. Rauðskeggur frá Kjarnholtum hlaut 9,5 fyrir skeið og samstarfsvilja. Hann hlaut fjölmargar níur bæði fyrir þætti byggingar og kosti, þar ber að nefna 9 fyrir tölt, hægt tölt, greitt stökk og fegurð í reið en að auki hlaut hann 9 fyrir háls/herðar/bóga, bak og lend, samræmi og hófa.

Rauðskeggur frá Kjarnholtum, knapi er Daníel Jónsson.
Rauðskeggur er þriðji hæst dæmdi stóðhestur á landinu árið 2020 í flokki 7 vetra og eldri.
Rauðskeggur frá Kjarnholtum hlýtur einnig viðurkenningu sem hæst dæmda hross ársins ræktað af félagsmanni í ræktunarfélagi Spretts með aðaleinkunnina 8,87.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum