Fláki frá Blesastöðum 1a efstur í A flokki
Fláki frá Blesastöðum 1a er efstur í A flokki gæðinga eftir forkeppni með 8,79 í einkunn. Knapi Þórður Þorgeirsson. Í öðru sæti er Frakkur frá Langholti með 8,71, knapi Atli Guðmundsson, og í þriðja sæti er Fróði frá Staðartungu með 8,69, knapi Sigurður Sigurðarson. Allir er hestarnir hátt dæmdir stóðhestar.
Í fjórða sæti er Stakkur frá Halldórsstöðum með 8,68 í einkunn, knapi Sigurbjörn Bárðarson. Stakkur er eini geldingurinn í sextán efstu sætunum, en hvorki fleiri né færri en 25 hestar af 30 efstu eru stóðhestar. Tvær hryssur skutust inn á milli, Lotta frá Hellu, sem er í sjöunda sæti með 8,61, knapi Hans Þór Hilmarsson, Gjöll frá Skíðbakka með 8,50, knapi Guðmundur Björgvinsson.
Þrjátíu efstu hestarnir keppa í milliriðli á fimmtudag. Tíu efstu fara í A úrslit og tíu næstu í B úrslit. Sigurvegari í B úrslitum keppir í A úrslitum.
A flokkur Forkeppni:
1 Fláki frá Blesastöðum 1A / Þórður Þorgeirsson 8,79
2 Frakkur frá Langholti / Atli Guðmundsson 8,71
3 Fróði frá Staðartungu / Sigurður Sigurðarson 8,69
4 Stakkur frá Halldórsstöðum / Sigurbjörn Bárðarson 8,68
5 Vafi frá Ysta-Mói / Magnús Bragi Magnússon 8,64
6 Óttar frá Hvítárholti / Súsanna Ólafsdóttir 8,64
7 Lotta frá Hellu / Hans Þór Hilmarsson 8,61
8 Skuggi frá Strandarhjáleigu / Elvar Þormarsson 8,60
9 Hringur frá Fossi / Sigurður Vignir Matthíasson 8,59
10 Gustur frá Gýgjarhóli / Guðmundur Björgvinsson 8,56
11 Snævar Þór frá Eystra-Fróðholti / Guðmundur Björgvinsson 8,56
12 Kvistur frá Skagaströnd / Guðmundur Björgvinsson 8,56
13 Greifi frá Holtsmúla 1 / Reynir Örn Pálmason 8,55
14 Kraftur frá Efri-Þverá / Eyjólfur Þorsteinsson 8,55
15 Dagur frá Strandarhöfði / Stefán Friðgeirsson 8,53
16 Grunnur frá Grund II / Sigursteinn Sumarliðason 8,53
17 Sálmur frá Halakoti / Atli Guðmundsson 8,52
18 Hnokki frá Þúfum / Mette Mannseth 8,51
19 Máttur frá Leirubakka / Sigurður Vignir Matthíasson 8,50
20 Gjöll frá Skíðbakka III / Guðmundur Björgvinsson 8,50
21 Sturla frá Hafsteinsstöðum / Hinrik Bragason 8,49
22-23 Máni frá Hvoli / Eyjólfur Þorsteinsson 8,49
22-23 Már frá Feti / Viðar Ingólfsson 8,49
24 Frægur frá Flekkudal / Sólon Morthens 8,48
25 Seiður frá Flugumýri II / Mette Mannseth 8,48
26-27 Svali frá Sámsstöðum / Höskuldur Jónsson 8,46
26-27 Stáli frá Ytri-Bægisá I / Þorvar Þorsteinsson 8,46
28 Trostan frá Auðsholtshjáleigu / Þórdís Erla Gunnarsdóttir 8,46
29 Kafteinn frá Kommu / Tryggvi Björnsson 8,45
30 Nói frá Garðsá / Berglind Rósa Guðmundsdóttir 8,44
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH