Flosi fljótastur í fyrri umferð
Það fylgir ávallt skemmtileg stemning kappreiðunum á landsmóti. Fyrri umferð 250 metra skeiðsins var að ljúka en keppendur fóru tvær bunur hér í hellidembu í Víðidal. Flosi frá Keldudal og Sigurbjörn Bárðarson voru fljótastir. Flosi fór brautina á 22,58 sekúndum.
Næstfljótastir voru Korði frá Kanastöðum og Teitur Árnason á 22,64 sekúndum.
Seinni umferð greinarinnar fer fram á morgun kl. 16.
- Flosi frá Keldudal og Sigurbjörn Bárðason – 22,58
- Korði frá Kanastöðum og Teitur Árnason – 22,64
- Gjálp frá Ytra-Dalsgerði og Sigurður Vignir Matthíasson – 22,74
- Blængur frá Árbæjarhjáleigu og Daníel Ingi Smárason – 22,79
- Þúsöld frá Hólum og Mette Mannseth – 22,83
- Birta frá Suður-Nýjabæ og Hanna Rún Ingibergsdóttir – 23.50
- Hnikar frá Ytra-Dalsgerði og Erling Ó. Sigurðsson – 23,94
- Segull frá Halldórsstöðum og Elvar Einarsson 24,41
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH