Flott dagatal

  • 30. desember 2013
  • Fréttir
Kolbrún Grétarsdóttir ein af ljósmyndurum Gabrielli Boiselle

Einn af ötulustu hestaljósmyndurum landsins Kolbrún Grétarsdóttir er meðal þeirra ljósmyndara sem eiga myndir á dagatali hinar þekktu Gabrielli Boiselle en hún gefur út fjöldann allan af dagatölum fyrir hin ýmsu hestakyn.

Íslenski hesturinn er einn þeirra en Gabrielli hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands. Á dagatali hennar um íslenska hestinn á Kolbrún flestar myndir, en dagatöl þessi þykja prýða svo fallegar myndir að fólk safnar þeim og geymir.

Hluti af söluverði dagatala Gabrielli fer jafnan til góðgerðamála og þá sér í lagi til mála sem varða dýravelferð.

Hægt er að kaupa dagatalið hjá Kolbrúnu, en hún heldur úti fésbókarsíðu á sínu nafni, en þar er hægt að nálgast upplýsingar um dagatal þetta og myndir frá henni.

Einnig er gaman að geta þess að forsíðumynd ensku útgáfu Eiðfaxa er tekin af Kolbrúnu, en myndin er af hestinum Hökli frá Þorkelshóli.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link