Flottar klárhryssur á Gaddstaðaflötum
Dómar á Gaddstaðaflötum, Hellu, halda áfram í dag en fyrra yfirlitið er á morgun og hefst það stundavíslega kl. 8:30. Margar flottar klárhryssur hafa komið þar fram en þar má nefna þær Álfhildi frá Syðri-Gegnishólum, Furu frá Hellu, Furu frá Stóru-Ásgeirsá og Sendingu frá Þorlákshöfn.
Fura frá Hellu er efsta hrossið sem stendur á sýningunni en hún er klárhryssa með 8,47 fyrir kosti. Hún hefur hlotið 9,5 fyrir tölt og fegurð í reið og 9,0 fyrir brokk, hægt tölt, hægt stökk og vilja og geðslag. Sýnandi Furu var Guðmundur F. Björgvinsson en Guðmundur sýndi aðra flotta klárhryssu, Sendingu frá Þorlákshöfn. Sending er undan Álfi frá Selfossi og Koltinnu frá Þorlákshöfn. Sending er 5vetra og hlaut í gær 8,15 í aðaleinkunn. Hún hlaut 9,0 fyrir tölt, stökk, vilja og geðslag og fegurð í reið.
Olil Amble sýndi Álfhildi frá Syðri-Gegnishólum, en hún er 5vetra undna Orra frá Þúfu og gæðingamóðurinni Álfadísi frá Selfossi. Álfhildur hlaut í gær fimm 9,0 og eina 9,5. Fura frá Stóru-Ásgeirsá fór í mjög flottan dóm en hún hlaut í aðaleinkunn 8,25 og sömu einkunn fyrir kosti. Hún er með 9,5 fyrir tölt og 9,0 fyrir hægt tölt, brokk, vilja og geðslag og fegurð í reið.
Hægt er að sjá dómana á hryssunum hér fyrir neðan:
IS2008287660 Álfhildur frá Syðri-Gegnishólum
Örmerki: 208213990005361
Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt
Ræktandi: Olil Amble
Eigandi: Olil Amble
F.: IS1986186055 Orri frá Þúfu í Landeyjum
Ff.: IS1982151001 Otur frá Sauðárkróki
Fm.: IS1983284555 Dama frá Þúfu í Landeyjum
M.: IS1996287660 Álfadís frá Selfossi
Mf.: IS1979125040 Adam frá Meðalfelli
Mm.: IS1990236512 Grýla frá Stangarholti
Mál (cm): 142 – 137 – 64 – 142 – 26,5 – 17,5
Hófa mál: V.fr.: 8,8 – V.a.: 8,3
Sköpulag: 8,5 – 8,0 – 7,5 – 8,0 – 7,5 – 7,5 – 9,0 – 7,5 = 8,02
Hæfileikar: 9,0 – 9,0 – 5,0 – 9,0 – 9,0 – 9,5 – 7,5 = 8,32
Aðaleinkunn: 8,20
Hægt tölt: 9,0 Hægt stökk: 8,5
Sýnandi: Olil Amble
IS2007286220 Fura frá Hellu
Örmerki: 000004709335
Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt
Ræktandi: Guðmundur Friðrik Björgvinsson
Eigandi: Marie Cecilie Clausen Kolnes
F.: IS2000184814 Eldjárn frá Tjaldhólum
Ff.: IS1991157345 Hugi frá Hafsteinsstöðum
Fm.: IS1983276001 Hera frá Jaðri
M.: IS1991286860 Ösp frá Skammbeinsstöðum 3
Mf.: IS1985186011 Ásaþór frá Stóra-Hofi
Mm.: IS1988286860 Frökk frá Skammbeinsstöðum 3
Mál (cm): 144 – 138 – 65 – 146 – 28,5 – 18,5
Hófa mál: V.fr.: 8,1 – V.a.: 8,1
Sköpulag: 8,5 – 9,0 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 7,0 = 8,42
Hæfileikar: 9,5 – 9,0 – 5,0 – 8,5 – 9,0 – 9,5 – 8,5 = 8,47
Aðaleinkunn: 8,45
Hægt tölt: 9,0 Hægt stökk: 9,0
Sýnandi: Guðmundur Friðrik Björgvinsson
IS2007255022 Fura frá Stóru-Ásgeirsá
Örmerki: 208213990006418
Litur: 0200 Grár/brúnn einlitt
Ræktandi: Elías Guðmundsson
Eigandi: Hulda Sigurðardóttir
F.: IS1994166620 Huginn frá Haga I
Ff.: IS1984163001 Sólon frá Hóli v/Dalvík
Fm.: IS1981266003 Vænting frá Haga I
M.: IS1993255035 Eldspýta frá Stóru-Ásgeirsá
Mf.: IS1989184551 Þorri frá Þúfu í Landeyjum
Mm.: IS1989255020 Von frá Stóru-Ásgeirsá
Mál (cm): 145 – 140 – 65 – 147 – 28,0 – 18,0
Hófa mál: V.fr.: 8,5 – V.a.: 7,7
Sköpulag: 8,5 – 8,5 – 8,5 – 9,5 – 7,0 – 8,0 – 7,5 – 7,5 = 8,24
Hæfileikar: 9,5 – 9,0 – 5,0 – 8,5 – 9,0 – 9,0 – 6,5 = 8,25
Aðaleinkunn: 8,25
Hægt tölt: 9,0 Hægt stökk: 8,0
Sýnandi: Þórður Þorgeirsson
IS2008287198 Sending frá Þorlákshöfn
Örmerki: 352206000035642
Litur: 2540 Brúnn/milli- tvístjörnótt
Ræktandi: Koltinna ehf
Eigandi: Koltinna ehf
F.: IS2002187662 Álfur frá Selfossi
Ff.: IS1986186055 Orri frá Þúfu í Landeyjum
Fm.: IS1996287660 Álfadís frá Selfossi
M.: IS1992287199 Koltinna frá Þorlákshöfn
Mf.: IS1989188560 Kolskeggur frá Kjarnholtum I
Mm.: IS1983236011 Tinna frá Svignaskarði
Mál (cm): 146 – 140 – 66 – 147 – 28,0 – 17,5
Hófa mál: V.fr.: 8,1 – V.a.: 7,8
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 7,5 – 8,5 – 7,0 = 8,26
Hæfileikar: 9,0 – 8,0 – 5,0 – 9,0 – 9,0 – 9,0 – 7,0 = 8,08
Aðaleinkunn: 8,15
Hægt tölt: 8,5 Hægt stökk: 8,5
Sýnandi: Guðmundur Friðrik Björgvinsson