Flottur reiðfatnaður
Mörg íslensk fyrirtæki hafa lagt leið sína á Heimsmeistaramótið í Berlín til að auglýsa vörur sínar þ.á.m. 66 norður. 66 hefur lengi verið þekkt fyrir vandaðan útivistafatnað en þeir fóru fyrir nokkrum árum að selja reiðfatnað. Við hönnun fatnaðarins fengu þau lið með sér hestamenn. Lagt var áhersla á að fatnaðurinn væri sterkur, þægilegur og smart.
„Við erum búin að selja mikið af jökkum og peysum. Minna hefur farið af buxum og barnafötum en salan gengur mjög vel“ segir Martin sem er sölufulltrúi fyrir 66 hér í Þýskalandi.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing