Flutt að Kirkjubæ

  • 19. desember 2012
  • Fréttir
Flutt að Kirkjubæ

Hallgrímur Birkisson og fjölskylda eru flutt að Kirkjubæ í Rangárþingi-ytra. Hallgrímur hafði áður búið ásamt Sævari Sigurvinssyni og fjölskyldu  í Arabæ í Flóahreppi. Nú í haust flutti Hallgrímur austur en Sævar heldur áfram starfsemi í Arabæ þar sem starfrækt verður tamningarstöð ástamt talsverðri rófurækt.

Það er allt að komast á fullt hjá Hallgrími í Kirkjubæ en þar mun hann starfrækja tamningar og þjálfun, en hann hefur um árabil verið einn öflugasti söluaðili hrossa á suðurlandi. Þegar blaðamaður Eiðfaxa spurði Hallgrím um starfsemina sagði hann muni áfram verða með talsvert magn söluhrossa ásamt þjálfun og tamningu kynbóta-og keppnishrossa. Í Kirkjubæ er pláss fyrir rétt tæplega 40 hross, en Hallgrímur mun einnig  sjá um einhverra Kirkjubæjarhrossa en segir „Guðmundur Björgvinsson og Eva Dyröy hafa verið í samstarfi við Kirkjubæjarbúið og það mun haldast óbreytt þó svo að ég muni temja og þjálfa eitthvað fyrir búið“.

Hallgrímur og kona hans Gyða Pálsdóttir eignuðust nú á dögunum dreng 18 merkur og 52 cm og heilsast þeim vel. „Auðvit mun talsverður tími fara í að einbeita sér að prinsinum en ég stefni samt á að allt verði komið hér á fullt strax eftir hátíðarnar. Það verða tvær öflugar stelpur að temja hérna með mér sem er mikilvægt í starfsemi sem þessari.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link