Fókus á fimmgang-
Fimmgangskeppninni þarf að vera gert hærra undir höfði. Það kom fram á fundi íþróttanefndar FEIF sem haldinn var í Hollandi á dögunum þar sem minnkandi þátttaka í fimmgangskeppnum (F1) var rædd.
Á HM í Austurríki í sumar vakti það athygli margra, m.a. yfirdómara, að nær helmingi færri þátttakendur voru skráðir í fimmgangskeppni mótsins en í fjórgangskeppni og tölt. „Við stöndum uppi með þennan mismun milli keppnisgreina, sem okkur þykir mjög skrítið miðað við að markmið ræktunar í íslenska hestsins er alhliðahestur. Við ræddum því hvort einhverra aðgerða væri þörf til að stuðla að meiri fókus á fimmgangskeppnina,“ segir Sigurður Sæmundsson, fulltrúi Íslands í íþróttanefnd FEIF.
Innan nefndarinnar voru hugmyndir uppi um að beina athyglinni betur að alhliðagæðingnum á HM. „Til dæmis væri hægt væri að breyta keppnisfyrirkomulaginu þannig að mótið myndi enda á fimmgangskeppninni í stað töltsins, eins og hefðin er orðin á Landsmóti,“ segir Sigurður.
Alls tóku 54 keppendur þátt í fjórgangskeppni Heimsmeistaramótsins, 49 í tölti en 26 í fimmgangskeppninni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH