Folaldasýning á Blönduósi
Hrossaræktarsamtökin í Austur-Húnavatnssýslu stefna á að halda folaldasýningu þann 20. janúar nk. í reiðhöllinni Arnargerði Blönduósi ef næg þátttaka næst.
„Dómari velur besta folaldið í flokkum hesta og hryssna en áhorfendur velja álitlegasta folaldið í sömu flokkum. Skráning á netföngin [email protected] og [email protected] fyrir 17. janúar. Veglegir follatollar verða í verðlaun,“ segir í tilkynningu á vefsíðu hestamannafélagsins Þyts.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH