Folaldasýning Hrossaræktafélags Biskupstungna

  • 12. febrúar 2013
  • Fréttir
Folaldasýning Hrossaræktafélags Biskupstungna

„Folaldasýning Hrossaræktafélags Biskupstungna var haldin í reiðhöllinni á Flúðum laugardaginn 9. Febrúar. Það var góð þátttaka og keppt var í tveim flokkum, merfolöldum og hestfolöldum. 

Jón Vilmundarson kynbótadómari stigaði folöldin og gaf hverjum grip umsögn.
Vel var mætt af áhorfendum og góð stemming.
 
Úrslit:
Hryssur:
 
1.sæti 
Hildur frá Fellskoti bleikálótt
F. Krákur frá Blesastöðum
M. Hnota frá Fellskoti
Ræktandi Fellskotshestar 
Eig. Fellskotshestar og Helga María Jónsdóttir
 
2.sæti
Óskadís frá Kjarnholtum 1 jörp
F. Óskasteinn frá Íbishóli
M. Hera frá Kjarnholtum 1
Ræktandi og eigandi Magnús Einarsson
 
3.sæti
Framtíð frá Fellskoti brún
F. Aron frá Strandarhöfði
M.Hugmynd frá Fellskoti
Ræktandi og eigandi Fellskotshestar ehf.
 
Hestar:
 
1. sæti
Kolbakur frá Kjarnholtum 1 brúnn
F. Ágústínus frá Melaleiti
M. Kolbrá frá Kjarnholtum
Ræktandi og eigandi Magnús Einarsson
 
2.sæti
Kjölur frá Kjóastöðum 3 brúnn
F.Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum
M.Dama frá Arnarstöððum
Ræktandi og eigandi Gunnar Rafn Birgisson
 
3.sæti
Nn.frá Torfastöðum rauður
F.Végeir frá Torfastöðum
M.Mardöll frá Torfastöðum
Ræktandi og eigandi Ólafur Einarsson og Drífa Kristjándóttir,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link