Folaldasýning Hrossaræktarfélagsins Náttfara
Öll hross eru folöld fyrst.
Sunnudaginn 27. janúar n.k. stendur Náttfari fyrir folaldasýningu í Melaskjóli á Melgerðismelum. Dómari verður Eyþór Einarsson en fyrirkomulagið verður þannig að hann dæmir sköpulag folaldanna fyrir hádegi, eftir hádegi – kl.13:00 – verður sjálf sýningin. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu folöld í hryssu- og hestaflokki auk þess sem áhorfendum gefst færi á að velja glæsilegasta folaldið. Þá gefst færi á að skrá til leiks ungfola fædda 2010 og 2011. Veitingasala verður í Funaborg, opið hús þar í hádeginu.
Skráning fer fram um netfangið [email protected] eða í síma 466-3140 fram til kl.19:00 föstudagskvöldið 25. janúar. Við skráningu skal gefa upp nafn, lit, foreldra, ræktanda og eiganda folaldsins.
Ester Hólakoti – Jón Elfar Hrafnagili – Sigríður Hólsgerði
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH