Folaldasýning í Söðulsholti
Folaldasýning í Söðulsholti Laugardaginn 22. janúar kl. 13. Keppt verður í kynjaskiptum flokkum og gestir velja fallegasta folaldið. Hver skráning kostar 1000 kr, hægt er að skrá hjá Einari í síma 8993314 eða hafa samband á [email protected] Sýningin er opin öllum. (Ath – ef veður verður ekki hagstætt, þá reynum við aftur 19. febrúar)
Gefa þarf upp:
Nafn:
Lit:
Fæðingarstað:
Föður:
Móðir:
Ræktandi:
Eigandi:
Að þessu sinni ætlum við að biðja fólk að reyna stilla fjöldanum í hóf og að hver ræktandi sé ekki að koma með fleiri en 3-4 folöld. Skráningargjald greiðist inn á 0354-26-4027 og kt 540999-2019. Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 20. Janúar. Aðgangseyrir er 1000 kr og innifalið í því eru kaffiveitingar, frítt fyrir 12 ára og yngri og auðvitað vonumst við til að sjá sem flesta, Góð hugmynd að gestir hafi með sér létta tjaldstóla til að geta hvílt lúin bein.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH