Folaldasýning í Söðulsholti
Mynd/sodulsholt.is
Laugardaginn 18. febrúar kl. 13 verður haldin folaldasýning í Söðulsholti.
„Hver skráning kostar 1000 kr, hægt er að skrá hjá Einari í síma 8993314 eða hafa samband á [email protected] Sýningin er opin öllum. Gefa þarf upp nafn,lit, fæðingarstað,föður, móðir, ræktanda og eiganda. Keppt verður í kynjaskiptum flokkum. Að þessu sinni ætlum við að biðja fólk að reyna stilla fjöldanum í hóf og að hver ræktandi sé ekki að koma með fleiri en 3-4 folöld. Skráningargjald greiðist inn á 0354-26-4027 og kt 540999-2019. Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 16. febrúar.
Aðgangseyrir er 1000 kr og innifalið í því eru kaffiveitingar, frítt fyrir 12 ára og yngri og auðvitað vonumst við til að sjá sem flesta,“ segir í tilkynningu frá Söðulsholti.
Styttu haustið með EiðfaxaTV