Folaldasýning og sala í Miðey

  • 14. september 2011
  • Fréttir
Folaldasýning og sala í Miðey

Í tilkynningu frá Miðey í Austur-Landeyjum segir að næstkomandi laugardag, þann 17. september, muni stóðinu vera smalað saman og gestum og gangandi boðið að koma og líta á ungviðið. 

„Hægt er að koma og skoða gripina milli kl. 14 og 17.  Mikill fjöldi folalda og tryppa verða til sýnis og sölu og hægt að gera glimrandi góð kaup. Í stóðinu eru meðal annars folöld og tryppi undan Fonti frá Feti, Hvammi frá Norður Hvammi, Magna frá Þúfu, Ófeigi frá Vatnahjáleigu, Dynjanda frá Feti, Svartni frá Miðsitju og Ljósálfi frá Hvítanesi.
 
Til að komast í Miðey er beygt niður veg 253 af Þjóðvegi 1 (Bakka afleggjari) að Voðmúlastöðum og þar beygt inn veg 252 (Miðeyjarafleggjari). Frá Miðey hafa m.a. komið fram glæsihryssurnar Árborg, Aldís og Eydís,“ segir í tilkynningunni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link