Folaldasýning Sörla 2013

  • 3. mars 2013
  • Fréttir
Folaldasýning Sörla 2013

„Verðlaun og uppboð á folatollum undir 1. verðlauna stóðhesta og spennandi ungfola.

 
Opna folaldasýning Sörla verður haldin í reiðhöllinni að Sörlastöðum í Hafnarfirði þann 9. mars kl. 13:00.
Keppt verður í flokki mer- og hestfolalda, og verða tvö folöld sýnd í hverju holli.
Guðmundur Viðarsson, Skálakoti & Vignir Siggeirsson Hemlu dæma.
Ókeypis aðgangur fyrir áhorfendur
 
Verðlaun verða veitt fyrir folald sýningar að mati dómara, folald sýningar að mati áhorfenda og sex efstu folöld í hvorum flokki. Hlýtur hver eigandi verðlaunafolalds einn toll fyrir sig.
 
Aldur frá Brautarholti (ae. 8.25)
Byr frá Mykjunesi (ae. 8.29)
Fálka frá Geirshlíð (ae. 8.07)
Gretti frá Grafarkoti (ae. 8.28)
Geisla frá Svanavatni (ae. 8.40)
Hrafnar frá Ragnheiðarstöðum (ósýndur)
Hring frá Skarði (ae. 8.48)
Kamban frá Húsavík (ae. 7.75)
Kaspar frá Kommu (ae. 8.40)
Nestor frá Kjarnholtum (ae. 8.30)
Tristan frá Árgerði (ae. 8.36)
Víkingur frá Ási 2 (ae. 8.49)
Þyrni frá Þóroddsstöðum (ae. 8.60)
Ægir frá Litlalandi (ae. 8.51)
 
Uppboð á folatollum verður í hléi undir stóðhestana Spuna frá Vesturkoti (ae. 8.92) og Barða frá Laugarbökkum (ae. 8.51)
Einnig verður boðinn upp folatollur undir ungfolann Vals frá Auðsholtshjáleigu. Vals er undan  Vordísi frá Auðholtshjáleigu (ae. 8.34), alsystur Gára frá Auðholtshjáleigu, og Hnokka frá Fellskoti (ae. 8.52)
Um að gera að mæta og gera massa góð kaup!

Skráning fer eingöngu fram á skráning.is og lýkur henni á miðnætti miðvikudaginn 6. mars Athugið að skráning gengur ekki í gegn nema greiðsla hafi verið framkvæmd en hægt er að greiða með millifærslu eða greiðslukorti.
 
Skráningargjald er 2.000 kr fyrir hvert folald.
 
Upplýsingar um folald verða birtar í sýningarskrá, þ.e.a.s. IS númer, nafn, uppruni, kyn, litur, foreldrar, ræktandi og eigandi – eru því eigendur beðnir um að vanda vel til verks.
 
Hollaröðun verður birt á netinu föstudaginn 8. mars,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link