Folaldasýning Sörla
Folaldasýning Sörla verður haldin í reiðhöllinni að Sörlastöðum í Hafnarfirði þann 10. mars kl. 13:00. Frítt inn. Keppt verður í flokki merfolalda annars vegar og hestfolalda hins vegar. Dómararnir eru öðlingarnir Kristinn Guðnason og Guðmundur Viðarsson, Skálakoti. Öllum er heimilt að skrá folöld á sýninguna.
Eigendur efstu sex folalda í hvorum flokki fá í verðlaun folatolla undir 1. verðlauna stóðhesta. Dómarar velja folald sýningarinnar og fær eigandi þess í verðlaun glæsilegan folatoll og Þjórsárbakkabikarinn sem gefinn er af Haraldi Þorgeirssyni. Áhorfendur velja síðan „Brekku-folaldið“ og fær eigandi þess stórglæsilegan folatoll í verðlaun.
Alls verða veitt í verðlaun 14 folatollar undir eftirfarandi 1. verðlauna stóðhesta:
- Geisla frá Svanavatni(8,40)
- Klæng frá Skálakoti(8,38)
- Aldur frá Brautarholti(8,41)
- Kraft frá Efri-Þverá(8,37)
- Segul frá Sörlatungu(8,01)
- Þyrni frá Þóroddsstöðum(8,60)
- Bjarkar frá Blesastöðum(8,39)
- Byr frá Mykjunesi(8,29)
- Haka frá Bergi(8,07)
- Víking frá Ási 2(8,33)
- Eldfara frá Stóru-Ásgeirsá(8,33)
- Vökul frá Síðu(8,16)
- Grunn frá Grund(8,47)
- Hring frá Skarði(8,48)
Í hléi verða boðnir upp folatollar undir hátt dæmda stóðhesta; Herjólf frá Ragnheiðarstöðum, Mátt frá Leirubakka og ungfolann Hrafnar frá Ragnheiðarstöðum, sem miklar væntingar eru gerðar til.
Skráning á [email protected]. Fram þarf að koma IS númer, nafn, uppruni, kyn, litur, foreldrar, eigandi og ræktandi. Staðfesting sendist á sama netfang. Setja skal nafn folalds sem skýringu á millifærslunni. Skráningargjald er 2.000 kr. fyrir fyrsta folald en 1.000 kr. ef eigandi skráir fleiri en eitt folald. Skráningarfrestur rennur út á miðnætti miðvikudaginn 7. mars. Sýningarskrá og hollaröðun verður birt á netinu fimmtudagskvöldið 8. mars.
Greiða skal skráningargjald á reikning nr. 0140-26-11058 – kt. 110583-3119
Kynbótanefnd Sörla
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH