Folaldasýning Sörla – frábærir folatollar á uppboði

  • 11. mars 2021
  • Fréttir

Óskasteinn frá Íbishóli

Hin árlega folaldasýning Sörla fer fram á Sörlastöðum í Hafnarfirði nk. laugardag kl. 13.00. Skráning á sýninguna hefur gengið vel og stefnir í að fjöldi stórættaðra folalda muni sprikla um gólfið á Sörlastöðum á laugardag.

Að venju verður uppboð á folaldasýningunni þar sem boðnir verða upp folatollar undir þekkta stóðhesta og þetta árið eru engar smá kanónur sem eru í boði.

Fyrstan skal telja heiðursverðlaunahestinn og stórsnillinginn Óskastein frá Íbishóli. Óskasteinn er einn af mögnuðustu gæðingum seinni tíma, enda með litla 9,12 fyrir hæfileika í kynbótadómi og afkvæmi hans virðast erfa gæðingskostina í ríkum mæli frá föðurnum.

Annar stórsnillingur sem þegar hefur sannað kynbótagildi sitt er glæsihesturinn Skaginn frá Skipaskaga. Skaginn hefur sem einstaklingur hlotið 8,73 í aðaleinkunn í kynbótadómi og síðastliðið sumar stóð hann efstur hesta með 1. verðlaun fyrir afkvæmi, aðeins 9 vetra gamall.

Þriðji í upptalningunni er ríkjandi Landsmótsmeistari í tölti, hinn kattliðugi Ljúfur frá Torfunesi. Ljúfur er einn magnaðasti töltari landsins og auk þess að hafa sigrað töltkeppni Landsmóts, hefur hann einnig hlotið einkunnina 10 fyrir tölt í kynbótadómi og 8,49 í aðaleinkunn sem klárhestur.

Síðastur en þó ekki sístur í þessari upptalningu er stólpagripurinn Hreyfill frá Vorsabæ II. Hreyfill er magnaður klárhestur sem hefur hlotið 8,54 í kynbótadómi og er þegar farinn að skila inn glæsilegum afkvæmum á kynbóta- og keppnisbrautina.

Enn er hægt að skrá folöld á folaldasýninguna með því að senda póst  á netfangið [email protected]. Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:

  •  -Nafn folalds
  •  -Nafn móður og föður folalds
  • -Litur
  • -Eigandi og ræktandi folalds

Skráningargjald fyrir folald er 2.000 kr og greiða skal inn á reikning: 0545-26-3615, kennitala: 640269-6509. Vinsamlegast sendið staðfestingu á netfangið [email protected] með nafni folalds sem skýringu.

Ekki missa af folaldasýningu Sörla nk. laugardag!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link