Folaldasýning Sörla laugardaginn 13. mars

  • 2. mars 2021
  • Fréttir

Folaldasýning Sörla verður haldin laugardaginn 13.mars á Sörlastöðum og hefst kl 13.00.

Keppt verður flokki hestfolalda og merfolalda og fær folald sýningarinnar hinn eftirsótta Þjórsárbakkabikar.

Dómarar eru ekki af verri endanum, kynbótadómararnir Jón Vilmundarson og Þorvaldur Kristjánsson

Skráning: senda á netfangið topphross@gmail.com. Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:

  •  -Nafn folalds
  •  -Nafn móður og föður folalds
  • -Litur
  • -Eigandi og ræktandi folalds

Skráningargjald fyrir folald er 2.000 kr og greiða skal inn á reikning: 0545-26-3615, kennitala: 640269-6509. Vinsamlegast sendið staðfestingu á netfangið topphross@gmail.com með nafni folalds sem skýringu.

Hlökkum til að sjá ykkur!
Kynbótanefndin.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar