Folatollar til styrktar krabbameinssjúkum börnum
Stytta af Kráki frá Blesastöðum er í fullri stærð á hlaðinu á Blesastöðum 1a á Skeiðum. Hún var höggvin með hamri og meitli af handverksmanni í Kína.
Fjórir folatollar seldust á 920 þúsund krónur samanlagt á uppboði á Stóðhestaveislu Magga Ben í Ölfushöllinni. Eftirsóttastur var tollur undur Krák frá Blesastöðum, en hann fór á 450 þúsund krónur. Kaupandinn var Guðmundur Már Stefánsson læknir á Strandarhöfði.
Tollar undir Stála frá Kjarri, Héðinn frá Feti og Óm frá Kvistum fóru á 140 til 180 þúsund krónur. Eigendur stóðhestanna gáfu tollana og Guðmar Aubertsson gaf vinnu við sæðingar undir þá Krák og Héðinn, sem verða á Sæðingastöðinni á Sandhólaferju í sumar.
Hagnaðurinn af uppboðinu rennur óskiptur til styrktar krabbameinssjúkum börnum. Einnig er í gangi happdrætti á vegum Stóðhestaveislunnar og mun hagnaðurinn af því einnig renna í sama sjóð. Í boði eru 45 tollar undir þekkta stóðhesta, þar á meðal Þrist frá Feti, Eldjárn frá Tjaldhólum, Mjölni frá Sandhólaferju, Hrímni frá Ósi, svo einhverjir séu nefndir.
Allir tollarnir í happdrættinu eru gefnir til styrktar málefninu. 1000 miðar verða seldir og eru þeir til sölu í hestavöruverslunum. Dregið verður í happdrættinu 24. apríl næstkomandi. Aðstandendur Stóðhestaveislunnar eru Magnús Benediktsson, Snorri Kristjánsson og Guðmundur Björgvinsson.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH