Fordæmalaus afskipti
Eiðfaxa barst eftirfarandi ályktun frá stjórn Gæðingadómarafélags LH, en eins og fram kom í frétt hér á vefnum þá hefur mikil óánægja verið á meðal gæðingadómara vegna afskipta utan að komandi aðila að ákvörðum um yfirdómara á komandi Landsmóti.
Ályktun stjórnar Gæðingadómarafélags LH.
Vegna afskipta stjórnar LM, mótstjóra LM, og stjórnar LH að skipun yfirdómara á Landsmót Hestamanna 2018.
Stjórn Gæðingadómarafélags LH harmar þau fordæmalausu afskipti sem stjórn Landsmóts, mótstjóri Landsmóts og stjórn LH höfðu af vali á dómurum og yfirdómara á Landsmót 2018.
Nauðsynlegt er að dómgæsla á Landsmóti sé hafin yfir allann vafa um hlutdrægni eða hagsmunatengsl og því mikilvægt að faglega sé staðið að vali á þeim dómurum sem dæma Landsmót hverju sinni. Stjórn Gæðingadómarafélags LH leggur mikla vinnu í það að velja hæfasta hópinn til að takast á við þá ábyrgð sem fylgir því að dæma bestu gæðinga landsins. Mikilvægt er að það val sé faglegt og framkvæmt af þeim sem besta yfirsýn hafa yfir dómara landsins og það er án efa stjórn GDLH.
Það kom því stjórn GDLH á óvart þegar stjórn Landsmóts sendi bréf þar sem sérstaklega var óskað eftir Sigurði Ævarssyni í starf yfirdómara. Bréf þetta barst áður en GDLH hafði lagt dómaralistann fyrir. Ekkert fordæmi er fyrir því að stjórn/framkvæmdanefnd LM fari að skipta sér af skipun yfirdómara enda hreinlega óleyfilegt samkvæmt reglum LH að gera það áður en dómaralistinn hefur verið samþykktur og það skal tekið fram að áðurnefndur dómari var ekki á þeim lista.
2.8.2 Framkvæmdanefndir móta
Undirbúning móta annast framkvæmdanefnd (sjá þó sérreglur um Íslandsmót og Landsmót), sem stjórn eða stjórnir viðkomandi hestamannafélaga skipa. Framkvæmdanefnd semur dagskrá mótsins, ákveður skráningargjöld, annast auglýsingu móts, móttöku þátttökutilkynninga og sér um annan undirbúning. Framkvæmdanefnd ber ábyrgð á að nægjanlega margt starfsfólk sé til staðar. Framkvæmdanefnd skipar eftirtalda starfsmenn mótsins:
• Mótsstjóra, sem skipa skal um leið og framkvæmdanefnd. Hann annast allan undirbúning móts ásamt framkvæmdanefnd. Hann ber ábyrgð á því að mótið fari fram eftir auglýstri dagskrá. Mótsstjóri ber ábyrgð á að dómgögn séu til staðar ásamt riturum.
• Yfirdómara, í samráði við dómaranefnd LH, úr hópi dómara, sem dómaranefndin hefur valið. Hann hefur umsjón með störfum dómara, en hefur ekki vald til að breyta niðurstöðu þeirra. Sjá einnig nánar um hlutverk yfirdómara í grein 8.3.3.
Dómaralisti sá sem GDLH lagði fyrir dómaranefnd LH, var skipaður margreyndum Landsdómurum sem flestir höfðu þekkingu og reynslu til að starfa sem yfirdómari og tillaga GDLH á yfirdómara og eftirlitsdómara var gerð að vel athuguðu máli. Þess vegna eru vinnubrögð mótstjóra, stjórnar LM og stjórnar LH óeðlileg og til þess eins að fallinn að skapa óeiningu og efasemdir um hlutleysi yfirdómara.
Stjórn GDLH
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH