Forkeppni í fimmgangi hafin
Forkeppni í fimmgangsflokkum Reykjavíkurmótsins er nú nýhafin.
Á ráslista í Meistaraflokki eru margir stólpagæðingar s.s. Alur frá Lundum II sem Jakob Svavar Sigurðarson keppir á og Eyjólfur Þorsteinsson mætir með Ögra frá Baldurshaga. Þá mætir Þórdís Erla Gunnarsdóttir með Hreggvið frá Auðsholtshjáleigu en þau vöktu mikla athygli í fimmgangsmóti Meistaradeildarinnar. Liðsfélagi Þórdísar, Edda Rún Ragnarsdóttir, er fyrst í braut á Hreim frá Fornusöndum. Eiginmaður Eddu, Sigurður V. Matthíasson mætir með Mátt frá Leirubakka og Viðar Ingólfsson keppir á Má frá Feti.
Útvarpað er frá mótinu á tíðninni 103,7.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH