Forkeppni á Suðurlandsmóti

  • 17. ágúst 2012
  • Fréttir
Jöfn og spennandi keppni í hringvallargreinum í 1. flokki. Stefnir í hörku einvígi milli Leó Geirs og Sigurbjarnar í tölti.

Elvar Þormarsson er efstur í fimmgangi í 1. flokki eftir forkeppni á Suðurlandsmóti í hestaíþróttum. Hann situr hestinn Skugga frá Strandarhjáleigu og eru þeir með 6,93 í einkunn. Jafn honum að stigum er Sigurður Óli Kristinsson á Gíg frá Hólabaki. Hugrún Jóhannsdóttir er þriðja á hinum leirljósa og blesótta Heiðari frá Austurkoti. Í fjórða til fimmta sæti er Haukur Baldvinsson á Fal frá Þingeyrum með 6,77, en hann er til alls líklegur í úrslitum og getur hæglega raskað röðinni á toppnum í úrslitum. Jöfn Hauki er Berglind Rósa Guðmundsdóttir, sem er nú kominn á skrið aftur eftir smá hlé á keppnisvellinum. Hún situr hestinn Nóa frá Garðsá.

Leó Geir Arnarson er efstur í tölti í 1. flokki á Krít frá Miðhjáleigu með 7,83 og Sigurbjörn Bárðarson fylgir honum fast eftir á Jarli frá Miðfossum með 7,67. Án efa verða spennandi úrslit í töltinu. Í 1. flokki í fjórgangi er Snorri Dal efstur eftir forkeppni á Gusti frá Stykkishólmi með 7,33, Hinrik Bragason annar á Njáli frá Friðheimum með 7,20 og Hulda Gústafsdóttir þriðja á Katli frá Kvistum með 7,17.

Í fjórgangi ungmenna er Stella Sólveig Pálmadóttir með tvo efstu hestana, Bárð frá Gili með 6,73 og Loka frá Dallandi með 6,63. Hún verður að velja annan hestinn í úrslit og þar með fellur hinn úr keppninni. Í tölti ungmenna er Ragnar Tómasson júníor efstur á Sleipni frá Árnanesi í Hornafirði með 7,07, og í fimmgangi ungmenna Ásmundur Ernir Snorrason á Grafík frá Búlandi með 6,83. Í barnaflokki er það Glódís Rún Sigurðardóttir sem situr fast við sinn keip á Kamban frá Húsavík og eru þau efst í fjórgangi barna með 6,33.

Forkeppni heldur áfram í dag, á laugardag eru B úrslit og A úrslit á sunnudag.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link