,,Forréttindi að fá að tilheyra þessum góða hópi“
Engill og Snorri á fljúgandi ferð
Snorri Dal er annar af tveimur nýliðum í landsliðshópi sem tilkynntur var í dag. Snorri er þó alls ekki neinn nýgræðingur og er með töluverða reynslu af þátttöku á stórmótum í landsliðsbúningnum. Hann hefur tvisvar verið í landsliðinu á Norðurlandamóti og þá var hann einnig á HM2009 á hestinum Oddi frá Hvolsvelli sem hann hafði verið Íslandsmeistari á tvö ár í röð í fjórgangi.
Snorri er 48 ára gamall og kemur úr Hestamannafélaginu Sörla í Hafnarfirði.
En hvernig tilfinning er að fá kallið aftur í landsliðshópinn? ,,Það er voðalega gaman og ákveðinn viðurkenning á því að maður sé að gera eitthvað rétt. Það eru forréttindi að fá að tilheyra þessum góða hópi knapa“.
Sá hestur sem Snorri stefnir með á HM er hinn fjölhæfi Engill frá Ytra-Bægisá I en þeir félagar náðu góðum árangri í sumar og eiga m.a. hæstu einkunn ársins í fimmgangi en hún er 7,57. Þá náðu þeir góðum árangri í gæðingaskeiði og er hæsta einkunn þeirra þar 7,33 og í slaktaumatölti er hæsta einkunn þeirra í ár 7,53. ,,Ég set stefnuna á HM með Engill í fimmgang, slaktaumatölt og gæðingaskeið en hann er magnaður í öllum þessum greinum.“ Segir Snorri.
Dóttir hans, Katla Sif, er í U-21 árs landsliðinu og fagnar Snorri því mjög að þau séu bæði í landsliðinu. ,,Það er eitt að komast í landsliðið en það er ekki síður skemmtilegt að dóttir mín sé þar líka. Við fjölskyldan erum saman í hestamennsku á fullu og styðjum þétt við bakið á hvort öðru. Þá er hún Sara Dís, dóttir mín, einnig í afrekshópi LH og því gaman þegar stritið skilar árangri. Anna Björk konan mín styður svo þétt við bakið á okkur öllum.“ Segir Snorri að lokum og er að vonum ánægður með kallið í landsliðshópinn.

Snorri Dal ásamt Kötlu Sif dóttur sinni sem er í U-21 landsliði Íslands
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH