Forsala hefst í dag
Frá Vesturlandssýningunni árið 2014.
Vesturlandssýningin verður haldin í Faxaborg, Borganesi laugardaginn 28. mars og hefst hún kl. 20.
„Fulltrúar hestamannafélaga á Vesturlandi og Hrossaræktarsambands Vesturlands efna til sýningar fimmta árið í röð. Nú styttist í Vesturlandssýningu og er undirbúningur í fullum gangi. Endanleg dagskrá verður auglýst bráðlega en hún spannar á milli 20-25 atriði. Þar má helst nefna börn, unglinga, ungmenni, gæðingafimi, A-flokk gæðinga, B-flokk gæðinga, skeið, kynbóta- hross, ræktunarbú og afkvæmasýningar,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum sýningarinnar.
Forsala verður í Faxaborg sunnudaginn 15. mars – færist mánudaginn 16. mars í Kaupfélag Borgfirðinga s: 430-5500. Aðganseyrir: 13 ára og yngri 1.000 kr. og 14 ára og eldri 2.500 kr.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH