Forsala á Ræktun

  • 20. apríl 2016
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Stórsýning Hrossaræktarsamtaka suðurlands.

Nú er forsala að hefjast fyrir stórsýningu Hrossaræktarsamtaka suðurlands Ræktun 2016 sem verður haldin í Fákaseli laugardaginn 23. apríl kl. 20.

Forsalan fer fram í verslun Top Reiter í Ögurhvarfi, Fákaseli og hjá Baldvin og Þorvaldi á Selfossi.

Síðustu ár hefur verið þétt setið á pöllunum og því vissara að vera snemma á ferðinni og tryggja sér miða í tíma því nú stefnir  í mjög glæsilega sýningu og hafa margir af allra bestu gæðingum landsins boðað komu sína.

Miðaverð er kr. 2.500, frítt fyrir 12 ára og yngri.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link