Forskoðun kynbótahross
Ræktunardagur Hrossaræktarfélags Spretts verður haldin 15.febrúar 2014.
Dagskrá:
Kl 08- 12 Forskoðun kynbótahrossa og kynning á byggingardómum. Kristinn Hugason,Reiðhöll Spretts
Kl 12 – 14 Sviðamessa í Reiðhöll Spretts á vegum Jonna. Fræðsluerindi Bergur Jónsson ,Ketilsstöðum
Kl 15- 18 Folaldasýning í Reiðhöll Spretts. Dómari: Bergur Jónsson
Kl 18-20 Sölusýning og uppboð á hrossum. Kynnir Logi Laxdal. Bjórkvöld á vegum Jonna.
Nánar:
1. Forskoðun kynbótahrossa fer fram í Reiðhöll Spretts 15. febr frá kl 08 – 12 . Dómari Kristinn Hugason. Sérstök kynning á byggingardómu mun fara fram kl 10. – 10.30 þar sem farið verður yfir dóma á áður hátt dæmdu hrossi. Skráning í forskoðun hjá: [email protected] í síðasta lagi 12. febr kl 20. Skrá þarf IS númer ,nafn, lit, foreldra og ræktanda. Skráningargjald kr 1500 fyrir félagsmenn í Hrossaræktarfélagi Spretts, 2000 fyrir aðra, greitt í reiðufé á staðnum . Skráning öllum opin. Einstakt tækifæri fyrir fólk að sjá hvort borgi sig að halda áfram með þjálfun á væntanlegum kynbótagrip. Kristinn hefur ekki klikkað á þessum forskoðunum.
2. Sviðamessa í hádeginu á vegum Jonna í Reiðhöll Spretts . Panta þarf mat í þessa veislu hjá: [email protected] í síðasta lagi 12. febr. Í Sviðamessunni mun Bergur Jónsson frá Ketilsstöðum halda fræðsluerindi . Hann kann frá mörgu af segja m.a. af langri og farsælli ræktun.
3. Folaldasýning kl. 15-18. Keppt verður í flokki hesta og hryssa. Dómari Bergur Jónsson. Skráning hjá: [email protected] í síðasta lagi 12.febr. kl 20. Skrá þarf IS númer. lit, foreldra og ræktanda. Skráningargjald kr 1500 fyrir félagsmenn í Hrossaræktarfélagi Spretts, 2000 fyrir aðra, greitt í reiðufé á staðnum. Skráning er öllum opin.
4. Sölusýning og uppboð á hrossum. Stjórnandi Logi Laxdal. Jafnframt verður bjórkvöld á vegum Jonna. Logi mun án efa gera þessa sölusýningu og uppboð skemmtilegt. Fáir fróðari um hesta og ættir þeirra en snillingurinn sá. Jonni klikkar aldrei á veitingunum. Skráning hjá: [email protected] í síðasta lagi 12. Febr kl 20. Skrá þarf IS númer, lit, foreldra og ræktanda. Skráning öllum opin.
5. Skrá þarf í eftirtalda verðflokka:
a. 0 – 300 þús.
b. 300- 600 þús.
c. 600- 900 þús
d. 900- 1200 þús.
e. 1200 þús og hærra
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH