Fótagerð – Átta hross hlutu 9,5

  • 7. september 2020
  • Fréttir

Ljósálfur er einn af þeim hestum hlutu 9,5 fyrir fótagerð á árinu, hér á aðsópsmiklu tölti mynd:Aðsend

Nú þegar kynbótasýningum er lokið hér heima og einungis ein sýning er eftir í Evrópu er gaman að renna yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum. Næsti eiginleiki sem við tökum fyrir hér á vef Eiðfaxa er fótagerð.

Til þess að fá glögga mynd af því eftir hverju er verið að leita þegar eiginleikinn er metin er gripið niður í stigunarkvarða einstaklingadóma og lýsing á einkunninni 9,5-10 í þeim eiginleikum sem teknir eru fyrir hverju sinni.

Alls hlutu átta hross á árinu einkunnina 9,5 fyrir fótagerð en ekkert hross hlaut einkunnina 10,0 í ár.

Fótagerð

Dómur á fótagerð skiptist í mat á útliti fótanna þar sem staða fram- og afturfóta er metin, sverleiki liða, lengdarhlutföll beina, vöðvafylling og prúðleiki þeirra; einnig er átak á fótum metið en þar er skoðuð þykkt sina, aðgreining þeirra frá leggjum og hversu þurrar sinar eru. Útlit fótanna vegur þyngra við einkunnagjöfina en átakið.

9,5 – 10

Rétt staða séð frá hlið á fram- og afturfótum; framfætur eru staðsettir framarlega við bóginn, eru beinir frá olnboga að kjúkum sem eru hæfilega langar og hallandi, afturfætur eru staðsettir undir hestinn þannig að setbein, hækill og afturleggur eru í lóðréttri línu og horn beina í mjaðmalið, hnjálið og hækli eru hæfilega kröpp. Þurrar, mjög sterklegar sinar og mjög góð skil sina og leggja. Liðir eru traustlegir, framfætur eru vöðvaðir og fætur eru prúðir.

 

Listi yfir þau hross sem hlutu 9,5 fyrir fótagerð

 

Nafn Uppruni Einkunn
Hagur Helgatúni 9,5
Hylur Flagbjarnarholti 9,5
Lilja Kvistum 9,5
Eldjárn Skipaskaga 9,5
Sparon Íbishóli 9,5
Ljósálfur Syðri-Gegnishólum 9,5
Eldey Efri-Hrepp 9,5
Náttfari Gunvarbyn 9,5

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link