Frá æfingum til afkasta
„Laugardaginn 27. April 2013.
Reiðhöllin Svaðastaðir á Sauðárkróki, kl: 13:00 – 15:00
Þriðja árs nemar í BS námi í reiðmennsku og reiðkennslu við Háskólann á Hólum ætla að slá til kennslusýningar um helstu verklegu þætti námsins. Sýningin mun innihalda þjálfun knapa og reiðhests frá æfingum til afkasta. Farið verður yfir sætisæfingar, yfirferðarþjálfun, frumtamningar, grunnþjálfun/gangsetningu, þjálfun hins alhliða gæðings o.fl. en auk þess verður fjallað um nýjungar námsins það er skeiðþjálfun og þjálfun kynbótahrossa.
Aðgangur ókeypis !
Hlökkum til að sjá sem flesta,“ segir í tilkynningu frá nemendum 3.árs í BS í reiðmennsku og reiðkennslu við Háskólann á Hólum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH